Innlent

Ingi­björg og Jón Ás­geir sýknuð af kröfu Sýnar upp á 1,6 milljarð króna

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Jón Ásgeir og Ingibjörg verða gefin saman í Fríkirkjunni í dag.
Jón Ásgeir og Ingibjörg verða gefin saman í Fríkirkjunni í dag.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Ingibjörgu Pálmadóttur og Jón Ásgeir Ásgeirsson af 1,6 milljarða kröfu Sýnar hf. vegna samkeppnisákvæða í samningi 365 miðla og Sýnar.

Krafan átti rót sína að rekja til kaupsamnings 365 miðla hf. og Sýnar frá því í mars 2017 þar sem Sýn keypti stærstan hluta miðla 365, þar á meðal  Stöð 2, Bylgjuna og Vísi. Sýn taldi að samkeppnisákvæði í kaupsamningnum hafi verið brotin en ákvæðið sem deilt var um snerist um skuldbindingu 365 til þess að hefja ekki samkeppni við Sýn á sama markaði. Undanþága var þó frá þeirri skuldbindingu sem var útgáfa Fréttablaðsins, sem nú er undir Torgi.  

Aðila greindi á um hvort yfirtaka Torgs á sjónvarpsstöðinni Hringbraut, sem var tengt vefsíðu Fréttablaðsins hafi falið í sér brot gegn samkeppnisákvæðum í kaupsamningnum. Hélt Sýn því fram að með því að færa allan rekstur Hringbrautar undir hatt Fréttablaðsins hafi farið Torg og fyrirsvarsmenn útgáfufélagsins, Ingibjörg og Jón Ásgeri, farið langt út fyrir heimildir kaupsamningsins.

Héraðsdómur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að það útgáfa hlaðvarps á vefsíðu Fréttablaðsins hafi ekki brotið gegn samkeppnisbanninu og Ingibjörg og Jón Ásgeir hafi eftir sölu á rekstri Fréttablaðsins ekki borið ábyrgð á því á grundvelli eignarhalds að sjónvarpsefni var tengt við vefsíðu blaðsins. Voru þau því sýknuð af kröfunum.

Vísir er í eigu Sýnar hf.


Tengdar fréttir

Jón Ásgeir og Ingibjörg vilja þrjá milljarða í bætur frá Sýn

Þau Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir og félag hennar 365 hf. hefur stefnt fjarskiptafyrirtækinu Sýn hf., forstjóra þess og öllum stjórnarmönnum til að greiða þeim alls þrjá milljarða í skaðabætur. Áður hafði Sýn stefnt hjónunum og krafist um 1,7 milljarða króna vegna meintra brota á kaupsamningi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×