Innlent

Vegir um Hellis­heiði, Þrengsli og Kjalar­nes lokaðir

Atli Ísleifsson skrifar
Reikna má með lokunum á fjölda vega í dag vegna slæms veðurs.
Reikna má með lokunum á fjölda vega í dag vegna slæms veðurs. Vísir/Vilhelm

Vegir á Suðvesturlandi eru víða lokaðir en vegna lægðarinnar sem nú gengur yfir landið má reikna með að skyggni og færð geti versnað hratt. Hálka er á öllum leiðum á höfuðborgarsvæðinu.

Vegir um Hellisheiði, Þrengsli, Mosfellsheiði og Kjalarnes eru allir lokaðir en á Suðvesturlandi er snjóþekja eða hálka á öllum leiðum, mjög slæmt skyggni og erfitt ferðaveður.

Á vef Vegagerðarinnar eru vegfarendur beðnir um að kanna vel aðstæður áður en lagt er af stað.

Búið er að opna Reykjanesbraut og Grindavíkurveg.

Á Vesturlandi er víða þæfingsfærð eða ófærð og veðurútlit fyrir daginn slæmt og má búast við að leiðir loki þegar líður á daginn. Óvissa er um ferðir Baldurs á Breiðafirði í dag.

Uppfært 7:55: Búið er að opna veginn um Kjalarnes. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×