Fjárfestar leita í öryggt skjól og losa sig við hluti í sögulegri óvissu sem nú ríkir - í skugga stríðsátaka í Evrópu. Alþjóðlegir hlutabréfamarkaðir taka mikið högg - úrvalsvísitala DAX í Þýskalandi hefur ekki tekið eins snarpa dýfu frá 2020 þegar talað var um hrun.
Ekki síst er kauphöllin í Moskvu í sögulegri lægð eftir að vesturveldin ýmist boðuðu eða komu á umfangsmiklum viðskiptaþvingunum.
Þróunin á mörkuðum er hefðbundin í miklu óvissuástandi. Gull er að hækka, ríkisskuldabréf, olía og gas enn fremur. En það sem hrynur eru hlutabréfamarkaðirnir - mælikvarði á traust gagnvart komandi tímum.
Þrátt fyrir mikið högg nú þegar átökin eru nýhafin eru fréttaskýrendur sem halda því fram að sögulega sé það svo að botninum sé náð á fyrsta degi átaka. Þaðan geti leiðin legið upp á við - en óvissan er þó enn mikil.
Öll félög á aðalmarkaði íslensku Kauphallarinnar hafa lækkað í markaðsvirði - úrvalsvísitalan um sex prósent. Þetta er versti dagur í langan tíma í Kauphöllinni.
Illa leikin eru einkum flugfélögin, Icelandair sem lækkar um rúm 9% og Play, sem lækkar um 6,4%. Icelandic Seafood lækkar um 9% og Eimskipafélagið, Kvika og Marel lækka öll um meira en 7%.

Hækkanirnar helgast í mörgum tilfellum af hækkandi olíuverði. Tunnan af Brent Norðursjávarolíu er orðin dýrari en sem nemur 100 Bandaríkjadölum; svo hátt hefur verðið ekki verið frá september 2014.
Rússar eru þriðji stærsti olíuframleiðandi heims og annar stærsti útflytjandinn. Bandaríkin eru að skoða ýmsar leiðir til að koma böndum á olíuverðshækkanir - þar á meðal að opna frekar á olíuvaraforðann. Þá hefur verið bent á að hækkandi olíuverð auki líkurnar á að verðbólgan hér á Íslandi skríði yfir sjö prósent markið.