Segir Armando og félaga hans hafa viljað 50 milljónir frá Antoni Kristni Birgir Olgeirsson skrifar 13. september 2021 10:34 Angjelin Sterkaj í dómsal í morgun. Vísir Angjelin Sterkaj segist hafa verið einn að verki þegar hann skaut Armando Beqirai til bana í Rauðagerði í Reykjavík í febrúar síðastliðnum. Angjelin segir Armando og Goran Kristján Stojanovic hafa viljað hvor um sig 25 milljónir frá Antoni Kristni Þórarinssyni.
Þetta kom fram í máli Angjelin við aðalmeðferð Rauðagerðismálsins svokallaða sem hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Angjelin sagði Armando og Goran hafa farið fram á þessa „sekt“ á Anton og beðið hann um að taka börn Antons til að setja pressu á Anton. Angjelin byrjaði á að kalla Anton Kristinn „Tona“ við skýrslugjöfina í morgun. Dómarinn bað hann um að vera skýrari og þá sagði Angjelin „Anton Kristinn Þórarinsson“. Angjelin sagði að hann hefði ekki viljað verða við þessu erindi Armandos og Goran. Þá hafi farið í hönd miklar deilur á milli aðila. Angjelin sagðist hafa orðið vandamál í augum þeirra Armando og Gorans og þeir hafi viljað losna við hann. Af hverju Armando og Goran vildu 25 milljónir frá Antoni kom ekki skýrt fram í máli Angjelin. Anton Kristinn var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins á sínum tíma og sætti meðal annars farbanni. Hann var um tíma í hópi sakborninga en var ekki ákærður í málinu. Lögmaður hans, Steinbergur Finnbogason, sakaði síðar lögreglu um að halda uppi „leiktjöldum“ löngu eftir að rannsóknin hefði veikt grunsemdir og sagði umbjóðanda sinn myndu leita réttar síns. Af gögnum í máli lögreglufulltrúa sem lekið var á Internetið í upphafi árs, og mikið var fjallað um í fjölmiðlum kom fram að Anton Kristinn hafi um tíma verið uppljóstrari hjá lögreglu. Anton Kristinn Þórarinsson. Angjelin sagði þá Armando og Goran hafa viljað 50 milljónir frá Antoni. Hafði í hótunum við sig Angjelin sagði Armando hafa haft í hótunum við sig. „Vandamálið var að hann hótaði mér. Hann sagði mér ekki einu sinni heldur, tuttugu sinnum: Ég ætla að skera barnið á háls og elda það í ofni,“ sagði Angjelin um meintar hótanir Armandos. Þannig hafi Armando hótað fjölskyldu Angjelins. Angjelin sagðist viss um að full alvara hefði verið að baki hótunum Armandos. Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari sækir málið en hún spurði Angjelin hvort hann hefði ekki hótað Armando. Angjelin svaraði þeirri spurningu með því að vísa til sakaferils hans sem sýni að hann stæði ekki í hótunum við fólk. Það ætti hins vegar ekki við um Armando og félaga þar sem hótanir hafi verið daglegt brauð hjá þeim, að sögn Angjelin. Einnig eru ákærð í málinu þau Shpetim Qerimi, Murat Selivrada og Claudia Sofia Coelho Carvalho. Sjálfsvörn Angjelin gekkst við því að hafa hótað Armando en það hafi verið í sjálfsvörn. „Eftir hótunina gagnvart mér sagði ég við hann: Ég skal ekki gefa það tækifæri. Ég skal fara í sjálfsvörn og ekki gefa þér tækifærið að gera það. Ég skal fylla þig af byssukúlum.“ Kolbrún spurði Angjelin hvers vegna hann hefði ekki farið til lögreglunnar með þessar hótanir. Angjelin svaraði að Anton fengi allar upplýsingar frá lögreglu sem hann vildi. Nefndi Angjelin í því samhengi karlmann sem fékk níu mánaða dóm árið 2018 fyrir að bjóða lögreglumanni gjafir gegn upplýsingum. Notaðist við hljóðdeyfi Angjelin skaut Armando með byssu með hljóðdeyfi fyrir utan heimili Armandos í Rauðagerði laugardagskvöldið 13. febrúar síðastliðinn. Fyrir dómi hafði kom fram að fyrirhugaður var sáttafundur í sumarhúsi á mánudeginum eftir helgina. Það sé eitthvað sem tíðkist í Albaníu þegar leita þurfi leiða til sátta. Til fundarins kom þó aldrei. Angjelin hafi orðið áhyggjufullur og hafi þá orðið sér úti um byssu. Hann hafi afráðið að fara að heimili Armando með byssuna á sér. Hann hafi viljað sættast við Armando. Armando hafi þá verið fyrir utan bílskúrinn sinn við Rauðagerði. „Ég sá hann taka haglabyssu úr skottinu og setja í hillu. Þá byrjaði ég að setja hljóðdeyfi á byssuna. Ef hlutirnir færu á versta veg myndi ég beita sjálfsvörn. Ég kallaði: „Armando!“ Þegar hann kom út ég ætlaði að spjalla við hann. Hann sagði „komstu hérna?““ Angjelin sagði Armando hafa ætlað að ráðast á sig. „Þarna tók ég byssuna upp, ég var með byssuna niðri, en um leið og hann ætlaði að ráðast á mig tók ég byssuna upp og byrjaði að skjóta.“ Angjelin Sterkaj sagðist ekki hafa sagt neinum að hann hefði drepið Armando Beqirai. Anton hafi spurt hvort Angjelin hefði drepið Armando Hann sagðist ekki hafa sagt neinum að hann hefði drepið Armando. Þegar vinur hans, sem ók honum frá Rauðagerði, spurði hvort hann hefði drepið Armando var svar Angjelins að Armando myndi ekki geta gert neitt lengur. Daginn eftir hafi hann hitt Anton Kristinn í sumarbústað. „Hann spurði hvort ég væri búinn að drepa Armando. Eina svarið var að ég veit að hann mun ekki drepa neinn lengur. Ég svaraði ekki hvort ég hefði drepið hann eða ekki.“ Aðalmeðferð málsins heldur áfram í dag þar sem skýrslur verða teknar af öllum fjórum sakborningum. Angjelin vill meina að hann hafi verið einn að verki en saksóknarar vilja meina að þrír aðrir hafi komið að morðinu á Armando í samverknaði. Réttarhöldin muni því að mestu snúast um hver hlutur hvers og eins var í málinu. Stór hluti spurninga verjanda lítur að því hvað Angjelin hafi sagt við þrjú ákærðu eða beðið þau um að gera. Lýst sem langstærsta fíkniefnabaróninum Lögregla hefur um árabil reynt að hafa hendur í hári Antons Kristins sem lýst hefur verið sem „langstærsta fíkniefnabaróninum“ á Íslandi. Hann hefur þó aðeins einu sinni fengið fangelsisdóm í þyngri kantinum og oftar en einu sinni sótt bætur til íslenska ríkisins eftir að hafa sætt gæsluvarðhaldi eða hlerunum í málum sem leiddu ekki til dóma. Af gögnum í máli lögreglufulltrúa sem lekið var á Internetið í upphafi árs kom fram að Anton Kristinn var um tíma uppljóstrari hjá lögreglunni. Í rannsókninni var rætt við fjölmarga rannsóknarlögreglumenn og settu sumir stórt spurningamerki við hvers vegna rannsóknir á málum tengdum Antoni Kristni virtust endurtekið renna út í sandinn. Efuðust þeir um heilindi lögreglufulltrúans. Rannsakendur héraðssaksóknara á máli lögreglufulltrúans töldu þó ekkert koma fram í gögnum málsins sem renndi stoðum undir ásakanir sem til rannsóknar voru. Var málið fellt niður og fékk lögreglufulltrúinn miskabætur frá ríkinu. Reiknað er með að aðalmeðferð standi næstu fjóra daga og ljúki með málflutningi þann 23. september.
Morð í Rauðagerði Dómsmál Reykjavík Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fleiri fréttir Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Sjá meira