Stórvinirnir LeBron og Chris Paul mætast í fyrsta sinn í úrslitakeppninni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. maí 2021 11:00 LeBron James og Chris Paul hafa mæst ótal sinnum á ferlinum en aldrei í úrslitakeppninni. getty/Harry How Úrslitakeppnin í NBA-deildinni í körfubolta í hefst um helgina og verða þrír leikir sýndir á Stöð 2 Sport. Meðal þeirra er fyrsti leikurinn í einvígi Phoenix Suns og Los Angeles Lakers þar sem stórvinirnir Chris Paul og LeBron James eru í aðalhlutverkum. Þrátt fyrir að James hafi spilað í NBA síðan 2003 og Paul síðan 2005 hafa þeir aldrei mæst í úrslitakeppninni. Þeir hafa ekki verið í sömu deild nema síðustu þrjú tímabilin og Paul hefur aldrei komist í úrslit NBA þar sem LeBron hefur verið fastagestur undanfarin ár. Lið þeirra LeBrons og Pauls hafa 28 sinnum mæst í NBA í gegnum tíðina. LeBron hefur fimmtán sinnum fagnað sigri en Paul þrettán sinnum. LeBron James og Chris Paul fagna sigri Bandaríkjanna á Spáni á Ólympíuleikunum 2012.getty/Tim Clayton Paul er á sínu fyrsta tímabili hjá Phoenix og hefur gjörbreytt liðinu. Það sýndi hvað í það var spunnið í búbblunni í Las Vegas síðasta haust og koma Pauls hefur gert gott lið enn betra. Devin Booker og Deandre Ayton hafa notað góðs af leiðtogahæfileikum Pauls og rulluspilararnir eru alltaf að verða betri. Phoenix var með næstbesta árangurinn í Vesturdeildinni, vann 51 leik, aðeins einum leik færra en topplið Utah Jazz. Á meðan lentu meistarar Lakers í miklum hremmingum vegna meiðsla lykilmanna. LeBron missti af 27 leikjum og Anthony Davis 39 leikjum. Eftir að þeir heltust úr lestinni seig Lakers niður töfluna og endaði að lokum í 7. sæti Vesturdeildarinnar. Lakers þurfti því að fara í umspil um sæti í úrslitakeppninni. Þar mætti liðið Golden State Warriors með sjóðheitan Stephen Curry í broddi fylkingar. Lakers vann leik liðanna í Staples Center, 103-100, þar sem LeBron setti niður stóra þriggja stiga körfu undir lokin. Lakers og Phoenix mættust síðast í úrslitakeppninni fyrir ellefu árum, þá í úrslitum Vesturdeildarinnar. Lakers vann einvígið, 4-2, og varð svo meistari eftir sigur á Boston Celtics í úrslitum, 4-3. Kobe Bryant heitinn var aðalmaðurinn í liði Lakers á þessum tíma á meðan Steve Nash fór fyrir Phoenix. Fyrsti leikur Phoenix og Lakers hefst klukkan 19:30 annað kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3. Klukkan 17:00 hefst fyrsti leikur Philadelphia 76ers og Washington Wizards á Stöð 2 Sport 3. Philadelphia vann Austurdeildina í fyrsta sinn í tuttugu ár á meðan Washington komst í úrslitakeppnina með því að vinna Indiana Pacers, 142-115, í umspilinu. Klukkan 20:30 í kvöld hefst svo fyrsti leikur Los Angeles Clippers og Dallas Mavericks á Stöð 2 Sport 2. Þessi lið mættust einnig í 1. umferð úrslitakeppninnar á síðasta tímabili. Þá vann Clippers einvígið, 4-2, þrátt fyrir hetjulega tilburði Lukas Doncic. Slóveninn magnaði tryggði Dallas meðal dramatískan sigur í fjórða leiknum með því að setja niður flautuþrist í lok framlengingar. BANG! ! Once again y all delivered Check out our MFFLs doing @luka7doncic s Clippers buzzer beater! #LukaLike pic.twitter.com/wzSAcPURDH— Dallas Mavericks (@dallasmavs) October 21, 2020 Doncic skoraði 43 stig, tók sautján fráköst og gaf þrettán stoðsendingar í leiknum. Í einvíginu var Slóveninn með 31,0 stig, 9,8 fráköst og 8,7 stoðsendingar að meðaltali í leik. Clippers tapaði óvænt fyrir Denver Nuggets, 4-3, í undanúrslitum Vesturdeildarinnar eftir að hafa komist í 3-1 í einvíginu. Það kostaði Doc Rivers þjálfarastarfið. Tyronn Lue, sem gerði Cleveland Cavaliers að meisturum 2016, tók við og nú þarf Clippers-liðið að sýna að það hafi tekið skref fram á við frá því í fyrra. NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. NBA Tengdar fréttir NBA dagsins: Sagan ekki með galdrakörlunum sem fundu loks sigurseyðið Gamanið mun fljótt kárna hjá Washington Wizards ef marka má söguna, þó að þeim hafi tekist að fullkomna upprisu sína með því að landa farseðli í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. 21. maí 2021 15:00 Embiid eða Jokic gæti fengið MVP-verðlaunin í fyrsta sinn Stephen Curry á möguleika á að verða fyrir valinu sem verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta í þriðja sinn á ferlinum. 21. maí 2021 11:00 Úr vonlausri stöðu í úrslitakeppni eins og Westbrook fullyrti Washington Wizards varð í gærkvöld áttunda og síðasta liðið í austurdeild NBA-deildarinnar í körfubolta til að komast í úrslitakeppnina. Washington vann Indiana Pacers 142-115 í umspilsleik. 21. maí 2021 07:31 NBA dagsins: James vann uppgjörið við Curry með augnvökva og ótrúlegum þristi LeBron James fékk góðan slatta af augnvökva eftir að Draymond Green slæmdi fingri í auga hans og setti niður ótrúlegan sigurþrist fyrir LA Lakers gegn Golden State Warriors í nótt. 20. maí 2021 16:01 Sá þrefalt en skaut Lakers í úrslitakeppnina LeBron James harkaði af sér ökklameiðsli og kom meisturum LA Lakers í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Lakers unnu Golden State Warriors 103-100 í umspilsleik. 20. maí 2021 07:32 Mest lesið „Eins og stúdentsprófin í MR“ Íslenski boltinn Tatum bættist óvænt við meiðslalistann fyrir oddaleikinn Körfubolti „Það fer í taugarnar á mér“ Íslenski boltinn Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Enski boltinn Sindri stígur fyrsta skrefið í átt að úrvalsdeild Körfubolti Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn Formúla 1 Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð Íslenski boltinn Orri Freyr portúgalskur meistari þriðja árið í röð Handbolti Arnar og Andrea sigurvegarar Puffin-hlaupsins Sport Uppgjörið: Keflavík - Haukar 72-98 | Haukar unnu og geta varið titil sinn Körfubolti Fleiri fréttir Tatum bættist óvænt við meiðslalistann fyrir oddaleikinn Sindri stígur fyrsta skrefið í átt að úrvalsdeild Uppgjörið: Keflavík - Haukar 72-98 | Haukar unnu og geta varið titil sinn Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Tíu stoðsendingar Martins dugðu skammt í toppslagnum Hvergi nærri hættur með KR „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Sjáðu fyrirliðann Tryggva taka við Evrópubikarnum „Þetta er smá spooky“ Tvíburar héldu sínum liðum á lífi Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Wembanyama varði skot yfir spjaldið og sendi Portland í sumarfrí Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Þreföld tvenna Jokic heldur Denver á lífi Rúnar og Logi áfram í Njarðvík næstu tvö árin Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 94-88| Njarðvíkingar berja frá sér KKÍ horfir til framtíðar Hnéskel Franks Arons brotnaði Wembanyama snéri aftur og átti stórleik „Um leið og ég sá hann fara ofan í fór mér að líða betur“ Sjá meira
Þrátt fyrir að James hafi spilað í NBA síðan 2003 og Paul síðan 2005 hafa þeir aldrei mæst í úrslitakeppninni. Þeir hafa ekki verið í sömu deild nema síðustu þrjú tímabilin og Paul hefur aldrei komist í úrslit NBA þar sem LeBron hefur verið fastagestur undanfarin ár. Lið þeirra LeBrons og Pauls hafa 28 sinnum mæst í NBA í gegnum tíðina. LeBron hefur fimmtán sinnum fagnað sigri en Paul þrettán sinnum. LeBron James og Chris Paul fagna sigri Bandaríkjanna á Spáni á Ólympíuleikunum 2012.getty/Tim Clayton Paul er á sínu fyrsta tímabili hjá Phoenix og hefur gjörbreytt liðinu. Það sýndi hvað í það var spunnið í búbblunni í Las Vegas síðasta haust og koma Pauls hefur gert gott lið enn betra. Devin Booker og Deandre Ayton hafa notað góðs af leiðtogahæfileikum Pauls og rulluspilararnir eru alltaf að verða betri. Phoenix var með næstbesta árangurinn í Vesturdeildinni, vann 51 leik, aðeins einum leik færra en topplið Utah Jazz. Á meðan lentu meistarar Lakers í miklum hremmingum vegna meiðsla lykilmanna. LeBron missti af 27 leikjum og Anthony Davis 39 leikjum. Eftir að þeir heltust úr lestinni seig Lakers niður töfluna og endaði að lokum í 7. sæti Vesturdeildarinnar. Lakers þurfti því að fara í umspil um sæti í úrslitakeppninni. Þar mætti liðið Golden State Warriors með sjóðheitan Stephen Curry í broddi fylkingar. Lakers vann leik liðanna í Staples Center, 103-100, þar sem LeBron setti niður stóra þriggja stiga körfu undir lokin. Lakers og Phoenix mættust síðast í úrslitakeppninni fyrir ellefu árum, þá í úrslitum Vesturdeildarinnar. Lakers vann einvígið, 4-2, og varð svo meistari eftir sigur á Boston Celtics í úrslitum, 4-3. Kobe Bryant heitinn var aðalmaðurinn í liði Lakers á þessum tíma á meðan Steve Nash fór fyrir Phoenix. Fyrsti leikur Phoenix og Lakers hefst klukkan 19:30 annað kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3. Klukkan 17:00 hefst fyrsti leikur Philadelphia 76ers og Washington Wizards á Stöð 2 Sport 3. Philadelphia vann Austurdeildina í fyrsta sinn í tuttugu ár á meðan Washington komst í úrslitakeppnina með því að vinna Indiana Pacers, 142-115, í umspilinu. Klukkan 20:30 í kvöld hefst svo fyrsti leikur Los Angeles Clippers og Dallas Mavericks á Stöð 2 Sport 2. Þessi lið mættust einnig í 1. umferð úrslitakeppninnar á síðasta tímabili. Þá vann Clippers einvígið, 4-2, þrátt fyrir hetjulega tilburði Lukas Doncic. Slóveninn magnaði tryggði Dallas meðal dramatískan sigur í fjórða leiknum með því að setja niður flautuþrist í lok framlengingar. BANG! ! Once again y all delivered Check out our MFFLs doing @luka7doncic s Clippers buzzer beater! #LukaLike pic.twitter.com/wzSAcPURDH— Dallas Mavericks (@dallasmavs) October 21, 2020 Doncic skoraði 43 stig, tók sautján fráköst og gaf þrettán stoðsendingar í leiknum. Í einvíginu var Slóveninn með 31,0 stig, 9,8 fráköst og 8,7 stoðsendingar að meðaltali í leik. Clippers tapaði óvænt fyrir Denver Nuggets, 4-3, í undanúrslitum Vesturdeildarinnar eftir að hafa komist í 3-1 í einvíginu. Það kostaði Doc Rivers þjálfarastarfið. Tyronn Lue, sem gerði Cleveland Cavaliers að meisturum 2016, tók við og nú þarf Clippers-liðið að sýna að það hafi tekið skref fram á við frá því í fyrra. NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
NBA Tengdar fréttir NBA dagsins: Sagan ekki með galdrakörlunum sem fundu loks sigurseyðið Gamanið mun fljótt kárna hjá Washington Wizards ef marka má söguna, þó að þeim hafi tekist að fullkomna upprisu sína með því að landa farseðli í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. 21. maí 2021 15:00 Embiid eða Jokic gæti fengið MVP-verðlaunin í fyrsta sinn Stephen Curry á möguleika á að verða fyrir valinu sem verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta í þriðja sinn á ferlinum. 21. maí 2021 11:00 Úr vonlausri stöðu í úrslitakeppni eins og Westbrook fullyrti Washington Wizards varð í gærkvöld áttunda og síðasta liðið í austurdeild NBA-deildarinnar í körfubolta til að komast í úrslitakeppnina. Washington vann Indiana Pacers 142-115 í umspilsleik. 21. maí 2021 07:31 NBA dagsins: James vann uppgjörið við Curry með augnvökva og ótrúlegum þristi LeBron James fékk góðan slatta af augnvökva eftir að Draymond Green slæmdi fingri í auga hans og setti niður ótrúlegan sigurþrist fyrir LA Lakers gegn Golden State Warriors í nótt. 20. maí 2021 16:01 Sá þrefalt en skaut Lakers í úrslitakeppnina LeBron James harkaði af sér ökklameiðsli og kom meisturum LA Lakers í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Lakers unnu Golden State Warriors 103-100 í umspilsleik. 20. maí 2021 07:32 Mest lesið „Eins og stúdentsprófin í MR“ Íslenski boltinn Tatum bættist óvænt við meiðslalistann fyrir oddaleikinn Körfubolti „Það fer í taugarnar á mér“ Íslenski boltinn Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Enski boltinn Sindri stígur fyrsta skrefið í átt að úrvalsdeild Körfubolti Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn Formúla 1 Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð Íslenski boltinn Orri Freyr portúgalskur meistari þriðja árið í röð Handbolti Arnar og Andrea sigurvegarar Puffin-hlaupsins Sport Uppgjörið: Keflavík - Haukar 72-98 | Haukar unnu og geta varið titil sinn Körfubolti Fleiri fréttir Tatum bættist óvænt við meiðslalistann fyrir oddaleikinn Sindri stígur fyrsta skrefið í átt að úrvalsdeild Uppgjörið: Keflavík - Haukar 72-98 | Haukar unnu og geta varið titil sinn Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Tíu stoðsendingar Martins dugðu skammt í toppslagnum Hvergi nærri hættur með KR „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Sjáðu fyrirliðann Tryggva taka við Evrópubikarnum „Þetta er smá spooky“ Tvíburar héldu sínum liðum á lífi Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Wembanyama varði skot yfir spjaldið og sendi Portland í sumarfrí Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Þreföld tvenna Jokic heldur Denver á lífi Rúnar og Logi áfram í Njarðvík næstu tvö árin Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 94-88| Njarðvíkingar berja frá sér KKÍ horfir til framtíðar Hnéskel Franks Arons brotnaði Wembanyama snéri aftur og átti stórleik „Um leið og ég sá hann fara ofan í fór mér að líða betur“ Sjá meira
NBA dagsins: Sagan ekki með galdrakörlunum sem fundu loks sigurseyðið Gamanið mun fljótt kárna hjá Washington Wizards ef marka má söguna, þó að þeim hafi tekist að fullkomna upprisu sína með því að landa farseðli í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. 21. maí 2021 15:00
Embiid eða Jokic gæti fengið MVP-verðlaunin í fyrsta sinn Stephen Curry á möguleika á að verða fyrir valinu sem verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta í þriðja sinn á ferlinum. 21. maí 2021 11:00
Úr vonlausri stöðu í úrslitakeppni eins og Westbrook fullyrti Washington Wizards varð í gærkvöld áttunda og síðasta liðið í austurdeild NBA-deildarinnar í körfubolta til að komast í úrslitakeppnina. Washington vann Indiana Pacers 142-115 í umspilsleik. 21. maí 2021 07:31
NBA dagsins: James vann uppgjörið við Curry með augnvökva og ótrúlegum þristi LeBron James fékk góðan slatta af augnvökva eftir að Draymond Green slæmdi fingri í auga hans og setti niður ótrúlegan sigurþrist fyrir LA Lakers gegn Golden State Warriors í nótt. 20. maí 2021 16:01
Sá þrefalt en skaut Lakers í úrslitakeppnina LeBron James harkaði af sér ökklameiðsli og kom meisturum LA Lakers í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Lakers unnu Golden State Warriors 103-100 í umspilsleik. 20. maí 2021 07:32