Átta sagðir látnir í skotárás í Indianapolis Hólmfríður Gísladóttir skrifar 16. apríl 2021 07:12 Myndin tengist fréttinni ekki beint. epa/CJ Gunther Að minnsta kosti átta eru látnir eftir skotárás í Indianapolis í Bandaríkjunum og margir særðir. Vitni segjast hafa heyrt skothvelli á starfsstöðvum FedEx og einn segist hafa séð mann hleypa af sjálfvirku skotvopni.
Frá þessu greinir BBC. Talið er að árásarmaðurinn hafi verið einn og er hann sagður hafa tekið eigið líf. Yfirvöld segja enga hættu á ferð fyrir almenning. „Ég sá mann með einhvers konar vélbyssu, sjálfvirkan riffil, og hann var að skjóta. Ég beygði mig strax niður og varð hræddur,“ hefur AFP eftir Jeremiah Miller, einum starfsmanna FedEx. Samkvæmt New York Times var lögregla kölluð til um kl. 23. Þá stóð árásin enn yfir en þegar komið var á vettvang fann lögregla strax nokkra einstaklinga sem höfðu verið skotnir til bana. Að sögn lögreglu voru særðir fluttir á nokkur sjúkrahús í borginni en starfsstöðin er í suðvesturhluta borgarinnar, nærri flugvellinum. Um 110 nákomnir hafa safnast saman á Holiday Inn Express skammt frá vettvangi, þar sem þeir hafa ekki náð sambandi við ástvini sína sem vinna á umræddri FedEx-stöð. Þess ber þó að geta að starfsmenn mega ekki vera með síma í vinnunni.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Erlent Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Erlent Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Innlent Bjarni fundaði með Guterres Innlent Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Innlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Fleiri fréttir Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Sjá meira