Innlent

Einstaklingur á sjötugsaldri í öndunarvél eftir millilendingu vegna veikinda

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur stöðuna nokkuð góða.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur stöðuna nokkuð góða. Mynd/Júlíus Sigurjónsson

Tveir eru á Landspítala, þar af einn í öndunarvél á gjörgæslu. Sá er á sjötugsaldri en millilent var hér vegna veikinda viðkomandi. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi um stöðu kórónuveirufaraldursins.

Enginn greindist með Covid-19 í gær en um þúsund sýni voru tekin innanlands. Frá því að hertar aðgerðir tóku gildi 25. mars sl. hafa um 90 greinst innanlands og þar af voru um 70 prósent í sóttkví.

Öll smit hafa reynst vera af völdum nokkurra undirtegunda hins svokallaða breska afbrigðis og öll má rekja til landamæranna. Í flestum tilvikum eru smitin tilkomin vegna þess að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum í sóttkví, sagði sóttvarnalæknir.

Um 30 manns hafa greinst með virkt smit á landamærunum á sama tíma, helmingur í fyrri sýnatöku og helmingur í seinni.

Þórólfur sagði ánægjulegt að í dag hefði tekið gildi ný reglugerð um tilslakanir og sagðist vona að þjóðinni bæri gæfa til að viðhalda góðum árangri þrátt fyrir þær. Sagði hann ganga vel að framfylgja reglugerðum um aðgerðir á landamærunum.

Þá væri verið að leggja lokahönd á reglur um aukið eftirlit með einstaklingum í heimasóttkví. Vel hefði gengið í sóttvarnahúsum og á milli 30 og 80 einstaklingar leitað þangað á hverjum degi.

Sagðist Þórólfur vonast til þess að hertar reglur á landamærunum takmörkuðu dreifingu innanlands. Hrósaði hann Rauða krossinum og öðrum sem koma að rekstri sóttvarnahúsa og landamæravörðum, fyrir þeirra góðu vinnu á óvissutímum.

Sóttvarnalæknir sagði stöðuna nokkuð góða en hvatti fólk enn og aftur til að gæta að persónulegum sóttvörnum og fara í sýnatöku við minnsta tilefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×