Átök brutust út eftir að lögregla skaut svartan mann til bana Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 12. apríl 2021 07:00 Frá friðsamlegum mótmælum við réttarhöldin yfir Derek Chauvin. epa/Craig Lassig Til átaka kom í úthverfi bandarísku borgarinnar Minneapolis í gærkvöldi eftir að lögreglumenn skutu ungan svartan mann til bana eftir að þeir höfðu stöðvað för hans.
Gríðarleg spenna er á svæðinu en nú fara fram réttarhöld yfir lögreglumanninum Derek Chauvin sem drap George Floyd, sem leiddi til fjöldamótmæla gegn lögregluofbeldi um öll Bandaríkin. Floyd var drepinn í Minneapolis og þegar fregnir bárust af drápi á öðrum svörtum manni í gær hópaðist fólk saman í úthverfinu Brooklyn Center og fljótlega kom til átaka milli fólksins og lögreglunnar. Lögregla beitti táragasi í aðgerðum sínum að sögn Reuters-fréttastofunnar. Mótmælendur köstuðu grjóti að lögreglubifreiðum og hoppuðu ofan á þeim. Atvikið mun hafa verið á þann veg að lögregla stöðvaði bifreið sem Daunte Wright, 20 ára, ók. Þegar í ljós kom að Wright var eftirlýstur fór hann aftur í bíl sinn og ók af stað og skaut lögregla hann þá. Bifreiðin stöðvaðist þegar hún lenti aftan á öðrum bíl og var Wright úrskurðaður látinn á staðnum.
Bandaríkin Black Lives Matter Mest lesið Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Innlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Innlent Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Erlent Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Innlent Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Innlent Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Innlent Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Innlent Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Innlent Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Innlent Fleiri fréttir „Svarta ekkjan“ fannst látin Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Barn meðal látinna í rútuslysi Þýska sambandsþingið leyst upp Fyrrverandi forsætisráðherra Indlands látinn Ákæra líka starfandi forseta til embættismissis Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Framkvæmdastjóri WHO staddur á flugvelli í Jemen þegar Ísraelar gerðu árás Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu fjórtán ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Sjá meira