Blake Griffin ætlar að ná sér í titil með stórskotaliði Brooklyn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. mars 2021 18:01 Blake Griffin klárar kom til Detroit Pistons um mitt tímabil 2017-18. Hann er nú farinn til Brooklyn Nets. getty/Thearon W. Henderson Körfuboltamaðurinn Blake Griffin hefur náð samkomulagi við Brooklyn Nets og mun klára tímabilið með liðinu í NBA-deildinni. Umboðsmaður Griffins staðfesti þetta við ESPN. Griffin rifti samningi sínum við Detroit Pistons á föstudaginn og mörg af sterkustu liðum NBA höfðu áhuga á að fá Griffin sem var einn besti leikmaður deildarinnar á sínum tíma. Free agent forward Blake Griffin has agreed to a deal with the Brooklyn Nets for the rest of the season, his agent Sam Goldfeder of @excelbasketball tells ESPN.— Adrian Wojnarowski (@wojespn) March 8, 2021 Meiðsli hafa hægt verulega á hinum 31 árs Griffin sem er ekki sami háloftafuglinn og hann var þegar hann lék með Los Angeles Clippers. Í tuttugu leikjum með Detroit á þessu tímabili var Griffin með 12,3 stig, 5,2 fráköst og 3,9 stoðsendingar að meðaltali. Talið er að Griffin verði notaður sem varamiðherji hjá Brooklyn sem þykir afar líklegt til afreka í vetur með stjörnuleikmennina Kevin Durant, Kyrie Irving og James Harden í broddi fylkingar. Griffin hefur ekki náð orðið NBA-meistari á ferlinum en sér væntanlega tækifæri til þess með stórskotaliði Brooklyn. Griffin var valinn nýliði ársins í NBA 2011. Hann hefur sex sinnum leikið í stjörnuleiknum og þrisvar sinnum verið valinn í annað úrvalslið deildarinnar og tvisvar sinnum í þriðja úrvalsliðið. NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. NBA Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti Sjá meira
Umboðsmaður Griffins staðfesti þetta við ESPN. Griffin rifti samningi sínum við Detroit Pistons á föstudaginn og mörg af sterkustu liðum NBA höfðu áhuga á að fá Griffin sem var einn besti leikmaður deildarinnar á sínum tíma. Free agent forward Blake Griffin has agreed to a deal with the Brooklyn Nets for the rest of the season, his agent Sam Goldfeder of @excelbasketball tells ESPN.— Adrian Wojnarowski (@wojespn) March 8, 2021 Meiðsli hafa hægt verulega á hinum 31 árs Griffin sem er ekki sami háloftafuglinn og hann var þegar hann lék með Los Angeles Clippers. Í tuttugu leikjum með Detroit á þessu tímabili var Griffin með 12,3 stig, 5,2 fráköst og 3,9 stoðsendingar að meðaltali. Talið er að Griffin verði notaður sem varamiðherji hjá Brooklyn sem þykir afar líklegt til afreka í vetur með stjörnuleikmennina Kevin Durant, Kyrie Irving og James Harden í broddi fylkingar. Griffin hefur ekki náð orðið NBA-meistari á ferlinum en sér væntanlega tækifæri til þess með stórskotaliði Brooklyn. Griffin var valinn nýliði ársins í NBA 2011. Hann hefur sex sinnum leikið í stjörnuleiknum og þrisvar sinnum verið valinn í annað úrvalslið deildarinnar og tvisvar sinnum í þriðja úrvalsliðið. NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
NBA Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti Sjá meira