De Jong allt í öllu er Barcelona komst nær toppliðunum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 24. janúar 2021 17:15 De Jong var frábær í dag. Jose Breton/Getty Images Barcelona vann 0-2 útisigur á Elche í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Hollenski miðjumaðurinn Frenkie De Jong skoraði fyrra markið og lagði upp það seinna. Sigurinn þýðir að Barca er áfram í þriðja sæti deildarinnar en nú með 37 stig, þremur stigum minna en Spánarmeistarar Real Madrid sem sitja í öðru sæti. Börsungar eru hægt og rólega að finna ryðmann á tímabilinu og unnu góðan 2-0 sigur á útivelli í dag. De Jong kom þeim yfir á 39. mínútu og sá til þess að gestirnir leiddu með einu marki í hálfleik. Það tók Börsunga töluverðan tíma að gera út um leikinn en varamaðurinn Ricard Puig skoraði á 89. mínútu eftir sendingu De Jong. Ronald Koeman getur þakkað markverði sínum að ekki fór verr í dag en Marc-Andre ter Stegen varði meistaralega einn á einn í stöðunni 0-1. Lionel Messi lék ekki með Börsungum í dag. Framlína liðsins var því skipuð þeim Ousmane Dembele, Martin Braithwaite og Antoine Griezmann. Það dugði til sigurs í dag þökk sé frammistöðu De Jong á miðjunni. FULL TIME! pic.twitter.com/UXcNyV9mve— FC Barcelona (@FCBarcelona) January 24, 2021 Spænski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti