Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sindri Sverrisson skrifar 4. október 2026 22:31 Vonbrigðin leyndu sér ekki hjá Valskonum eftir að fall þeirra varð staðreynd á föstudagskvöld. vísir/Anton Sérfræðingarnir í Bestu mörkunum fóru vandlega yfir hið svakalega fall Vals í þætti dagsins, nú þegar ljóst er að liðið spilar í næstefstu deild næsta sumar í fyrsta sinn í sögunni. Þessa stöðu segja þeir mega rekja til „galinna“ ákvarðana ráðamanna félagsins.
Í Bestu mörkunum á Sýn Sport Ísland í dag sýndu Jóhann Fjalar Skaptason og sérfræðingar hans þann ótrúlega mun sem orðið hefur á Val á aðeins tveimur árum. Liðið sem tapaði úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn gegn Breiðabliki 2024, eftir að hafa unnið titilinn 2023, 2022, 2021 og 2019, gjörbreyttist með nýrri stefnu um að fá unga leikmenn á Hlíðarenda og horfa á eftir bestu leikmönnum liðsins. Klippa: Ótrúlegt fall Vals á tveimur árum „Þetta er svakaleg breyting. En þær eru að falla með 24 stig og árið 2024 endaði FH í 6. sæti með 25 stig. Þetta er að vissu leyti Íslandsmet í að falla með háan stigafjölda,“ benti Katrín Ásbjörnsdóttir á. Örfáir leikmenn standa eftir úr leikmannahópnum sem lék um titilinn 2024 og Mist Rúnarsdóttir segir flesta hafa getað séð að það stefndi í óefni á Hlíðarenda: „Það er bara ákvörðun félagsins að láta margar hverjar af þessum kempum fara. Katie Cousins er að „bossa“ deildina með Þrótti, Natasha er búin að vera frábær fyrir Grindavík/Njarðvík, Jasmín Erla vissulega fellur með Víkingum en hefur átt gott mót, Elísa Viðarsdóttir frábær í Blikaliðinu og við getum haldið áfram. Þetta er ákvörðun sem er tekin, mér fannst hún galin þá og okkur flestum, og hún súmmerast vel upp núna. Þetta var allt of bratt,“ sagði Mist. En hvað tekur við hjá Valsliðinu í Lengjudeildinni næsta sumar? „Það er stóra spurningin. Vissulega eru öðruvísi aðstæður hjá liðunum sem féllu í fyrra, lið utan af landi úr allt öðruvísi umhverfi. Tindastóll skítfellur úr Lengjudeildinni í sumar og FHL endar í 6. sæti. Lið eins og Selfoss og Keflavík hafa verið í bullandi brasi eftir að hafa verið nokkuð traust lið í efstu deild. Þau eru ekkert að banka á dyrnar, það eru bara önnur lið í því. Það verður ekki auðvelt fyrir Val, né Víkinga, að fara þarna niður,“ sagði Mist. „KR og Grótta eru að koma upp og reyna mögulega að krækja í leikmenn sem vilja kannski fara frá Val,“ benti Katrín á en fagnaði því fyrir hönd Vals að Matthías Guðmundsson þjálfari virtist vilja halda áfram. „Matti segist tilbúinn að fara með liðinu niður og vinna í að koma því aftur upp og það er sterkt og jákvætt fyrir liðið eftir svona fall. Hann er bara í þessu með stelpunum. Það hefur kannski vantað aðeins þetta því það er eins og leikmennirnir, þjálfarinn og stjórnin séu öll á mismunandi brautum. Hann allavega stendur með þeim og það er jákvætt en svo er spurning hvað stelpurnar vilja gera. Þetta eru ungar og efnilegar stelpur, margar með yngri landsleiki á bakinu. Þetta verður erfitt,“ sagði Katrín.
Besta deild kvenna Valur Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Sjá meira