Enski boltinn

Dregur sig úr landsliðshópnum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Scott (t.h.) í leik við West Ham í fyrra. Hann verður frá vellinum næstu tvo mánuðina.
Scott (t.h.) í leik við West Ham í fyrra. Hann verður frá vellinum næstu tvo mánuðina. Getty

Alex Scott, miðjumaður Bournemouth, hefur dregið sig úr landsliðshópi Englands fyrir leik við Tékka á morgun.

Scott meiddist illa á læri og verður frá í sex til átta vikur að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC.

Scott spilaði sinn fyrsta landsleik í byrjunarliði og var frábær í sögulegum 7-0 sigri Englendinga á Króötum í fyrradag. Um var að ræða stærsta tap í sögu króatíska landsliðsinsins.

Scott byrjaði á miðjunni með Elliot Anderson í leiknum og spilaði fyrstu 70 mínúturnar. Útlit er fyrir að hann missi af fjölda leikja Bournemouth vegna meiðslanna en liðið á níu leiki fram að næsta landsleikjaglugga í nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×