Innlent

Fjöldi fólks á Eskifirði þarf að yfirgefa hús sín vegna skriðuhættu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Til stendur að rýma hús við fimm götur á Eskifirði.
Til stendur að rýma hús við fimm götur á Eskifirði.

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi og Veðurstofu Íslands, hefur lýst yfir hættustigi á Eskifirði vegna skriðuhættu. Óvissustig er á öllum Austfjörðum, neyðarstig á Seyðisfirði og nú hættustig á Eskifirði.

Í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi segir að sprungur í gamla Oddskarðsveginum, ofan Eskifjarðar, hafi stækkað í dag.

Veðurstofan mælist til þess að Botnabraut, Hátún, Helgafell, Lambeyrarbraut, Hólsvegur og Strandgata verði rýmdar.

Óvissustig er á öllum Austfjörðum. Neyðarstig á Seyðisfirði og hættustig á Eskifirði.

Íbúar í viðkomandi götum eru beðnir um að skrá sig í fjöldahjálparstöð Rauða kross Íslands í kirkju- og menningarmiðstöðinni að Dalbraut 2 á Eskifirði eða að hringja í síma 1717.

Rýmin á Seyðisfirði er í bígerð en þar er stefnt á að rýma allan bæinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×