Lukaku hetjan úr vítaspyrnu sem Napoli menn voru brjálaðir yfir Anton Ingi Leifsson skrifar 16. desember 2020 21:42 Insigne var allt annað en sáttur við dóminn og fékk beint rautt spjald. Marco Luzzani/Getty Romelu Lukaku skoraði eina markið er Inter vann 1-0 sigur á Napoli í stórleik umferðarinnar í ítalska boltanum í knattspyrnu. Staðan var markalaus allt þangað til á 71. mínútu en þá dró til tíðinda. Inter fékk vítaspyrnu við litla hrifningu Napoli. Lorenzo Insigne mótmælti það mikið að hann fékk beint rautt spjald en Lukaku sér fátt um finnast og skoraði úr vítinu. Lokatölur 1-0. Inter er í öðru sætinu með 27 stig, stigi á eftir AC Milan. Napoli er í fjórða sætinu með 23 stig. AC Milan gerði 2-2 jafntefli við Genoa á útivelli. Milan kom í tvígang til baka og jafnaði er sjö mínútur voru eftir, stig sem heldur toppsætinu. - @acmilan set a Serie A record of scoring multiple goals in 14 consecutive matches. The previous record was 13 by Torino from May to October 1948. #SempreMilan #GenoaMilan— Gracenote Live (@GracenoteLive) December 16, 2020 Andri Fannar Baldursson spilaði í tíu mínútur er Bologna gerði ótrúlegt 2-2 jafntefli við á Spezia á útivelli. Jöfnunarmark Bologna kom á 92. mínútu og þeir fengu vítaspyrnu á 96. mínútu sem fór forgörðum. Bologna er í tólfta sæti deildarinnar. Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Fótbolti Ítalski boltinn
Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti