Dómar styttir yfir mönnum sem nauðguðu unglingsstúlku Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. desember 2020 15:02 Brotin áttu sér stað í Reykjavík í febrúar árið 2017. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur mildað dóm yfir tveimur Pólverjum á fertugsaldri sem sakfelldir voru fyrir að hafa nauðgað unglingsstúlku í Reykjavík í febrúar 2017. Lukasz Soliwoda og Tomasz Walkowski fengu tveggja ára fangelsisdóm en höfðu hlotið þriggja ára dóm í héraði.
Þriðji karlmaðurinn, sem var nær stúlkunni í aldri, var sýknaður í héraði og var þeirri niðurstöðu ekki áfrýjað til Landsréttar. Mennirnir voru ákærðir fyrir að hafa brotið á stúlkunni hver fyrir sig í herbergi á heimili í Reykjavík með því að hafa „haft samfarir og önnur kynferðismök“ við stúlkuna án hennar samþykkis. Brotin áttu sér stað í heimahúsi í Reykjavík þann 4. febrúar 2017. Stúlkan, sem var sextán ára þegar brotin voru framin, hitti þann yngri af þeim þremur í miðbæ Reykjavíkur síðla kvölds. Skemmtu þau sér saman áður en Lukasz og Tomasz sóttu þau og fóru þau þá að heimili mannanna þriggja í Reykjavík. Landsréttur vísaði til meðal annars til þess hve langan tíma málið hefði tekið í rökstuðningi sínum fyrir mildun. Þó var áréttað að brotin hefðu verið alvarleg og beinst gegn einstaklingi undir átján ára aldri. Þeir hefðu nýtt sér aldurs- og þroskamun til að brjóta á henni. Landsréttur staðfesti að öðru leyti sakfellinguna og þyngdi lítillega miskabótagreiðsluna til stúlkunnar. Þurfa þeir hvor að greiða henni 1,5 milljónir króna í bætur. Málavextir voru raktir í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í fyrra. Sendi yngsta manninn út að reykja Stúlkunni og ákærðu bar ekki saman um hvað gerðist eftir að komið var í heimahúsið en í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sagði að ætla mætti að þau hefðu öll farið inn í eitt af þremur herbergjum íbúðarinnar, herbergi Tomaszar. Urðu aðstæður þannig að Tomasz og stúlkan voru ein eftir í herberginu en í dómi héraðsdóms kemur meðal annars fram að Tomasz hafi beðið yngsta karlmanninn að fara út að reykja í tíu mínútur. Fyrir dómi sagðist maðurinn hafa verið með samviskubit yfir því að hafa farið út að reykja og þannig skilið stúlkuna eftir í herberginu með Tomaszi. Í millitíðinni virðist Lukasz hafa yfirgefið herbergið. Landsréttur mildaði dóminn yfir félögunum úr þremur árum í tvö ár.Vísir/Vilhelm Um það sem gerðist þá lýsti stúlkan því fyrir dómi að hún hefði verið ölvuð og því ekki haft stjórn á atvikum. Tomasz hafi haft allt frumkvæði að kynmökum en hún frosið. Hefði hún óttast hvað mundi gerast ef hún streittist á móti. Þá hafi hún verið ein í húsnæði með þremur mönnum og kom skýrt fram í framburði hennar að ákærðu hefðu sýnt henni ofríki þegar hún var orðin ein með þeim og hún ekki þorað að mótmæla gerðum þeirra af ótta um hvernig þeir brygðust við. Sagði henni að fara að skoða herbergi Lukaszar Tomasz hélt því aftur á móti fram að það sem gerst hafi í herberginu hafi verið að frumkvæði stúlkunnar. Mat héraðsdómur það ótrúverðugt enda hafi framburður hans um hvað gerðist í herberginu verið á reiki, enda hafi hann í fyrstu neitað að hafa haft samræði við stúlkuna. Sú afstaða breyttist þegar honum var kynntur framburður meðákærðu í málinu. Eftir að Tomasz hafi lokið sér af kemur fram í dómi héraðsdóms að hann hafi sagt henni að fara og skoða herbergi Lukaszar með það í huga að hún hefði kynmök við ákærða, Lukasz, án þess að segja það við hana. Segir í dómi héraðsdóms að þetta lýsi ákveðinni stjórn hans á gerðum hennar og þrýstingi eða blekkingu gagnvart henni. Ráðskuðust með stúlkuna Í dómi héraðsdóms kom fram að Lukasz hafi tekið á móti stúlkunni á ganginum og leitt hana inn í herbergið þar sem hann nauðgaði henni. Líkt og Tomasz hélt Lukasz því fram að það hafi verið vilji stúlkunnar að hafa við hann kynmök. Í dómi héraðsdóms sagði þvert á móti að ekkert bendi til þess að hún hafi viljað hafa kynmök við hann. Þannig hafi Tomasz og Lukasz ráðskast með stúlkuna og ýtt henni inn í þær aðstæður að vera ein með Lukaszi þar sem hún hafði enga möguleika á því að verja sig án þess að eiga á hættu viðbrögðum ákærðu. Karlmennirnir fengu þriggja ára óskilorðsbundinn dóm í héraði fyrir sléttu ári. Þeir áfrýjuðu dómnum og er niðurstaðan tveggja ára fangelsi.Vísir/Vilhelm Sagði í dómi héraðsdóms að telja verði að Lukaszi hafi í ljósi aðstæðna verið fullljóst að stúlkan hefði verið leidd til hans þar sem hann tók við henni og það sem gerðist í framhaldinu verið hans ákvörðun. Þá verði að hafa í huga að Tomasz „var þegar búin að hafa kynmök við brotaþola og mátti því ætla að hann gæti stýrt brotaþola á þennan hátt,“ líkt og sagði í dómi héraðsdóms. Báðum mátti vera aldur stúlkunnar ljós Þar kemur meðal annars fram að báðum mönnum hafi mátt vera fulljóst að stúlkan hafi verið 16 ára gömul og að þeir hafi misnotað sér gróflega aðstöðu sína á grundvelli yfirburða sinna í aldri og þroska. Sömuleiðis ölvunarástand stúlkunnar og þær aðstæður sem uppi voru þar sem hún var ein með þremur ókunnugum mönnum í óvenjulegu húsnæði og við mjög sérstakar aðstæður. Í dómi héraðsdóms sagði að mennirnir tveir ættu sér engar málsbætur, þeir hafi misnotað sér ástand og aðstæður ungrar stúlku í því skyni að ná fram vilja sínum og skeyttu engu um velferð hennar. Brot þeirra hafi verið alvarleg og ófyrirleitin. Því hafi ekki verið tilefni til þess að skilorðsbinda þriggja ára fangelsisdóm þeirra, þrátt fyrir að meðferð málsins hafi dregist úr hófi. Yngri maðurinn var hins vegar sýknaður af því að hafa þvingað stúlkuna til þess að hafa við sig munnmök þar sem ekki þótti sannað að hann hefði gert það. Ríkissaksóknari ákvað að áfrýja þeim sýknudómi ekki til Landsréttar. Lukasz og Tomasz voru í héraði dæmdir til að að greiða stúlkunni 1,3 milljónir hvor í miskabætur.
Reykjavík Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Innlent NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Erlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Fleiri fréttir Kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Sjá meira