Innlent

Síbrotamaður í umferðinni taldi lögreglu leggja sig í einelti

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra. Vísir/Vilhelm

Karlmaður sem dæmdur hefur verið í fangelsi fyrir að hafa ekið tíu sinnum sviptur ökuréttindum og einu sinni undir áhrifum áfengis taldi að lögreglumenn væru að leggja hann í einelti fyrir ítrekuð afskipti af honum. Lögreglumenn sögðu manninn hafa sagt þeim að hann myndi aldrei hætta að aka bifreið, jafn vel þó það myndi leiða til þess að hann yrði dæmdur í fangelsi.

Alls var maðurinn ákærður fyrir þrettán umferðarlagabrot sem öll tengdust því að hann var grunaður um að hafa ekið bíl sviptur ökuréttindum auk eins skiptis undir áhrifum áfengis. Fyrir dómi féll ákæruvaldið reyndar frá tveimur ákæruliðum, þannig að eftir stóðu tíu skipti þar sem maðurinn var grunaður um akstur án ökuréttinda og eitt skipti þar sem hann var grunaður um ölvunarakstur.

Maðurinn játaði sjö af ákæruliðunum en þvertók fyrir að hafa í þrjú skipti ekið sviptur ökuréttindum og að hafa ekið einu sinni undir áhrifum áfengis.

Í eitt skipti var maðurinn ósáttur við afskipti lögreglu sem höfðu þá fylgst með manninum aka á bílastæði við Krónuna í Hafnarfirði. Nokkrum dögum áður hafði lögregla einnig haft afskipti af manninum fyrir að aka sviptur ökuréttindum og því könnuðust lögreglumenn við kauða. Hann var hins vegar ósáttur við afskiptin og sagði að lögreglan legði sig í einelti.

Fyrir dómi sagðist lögreglumaður kannast vel við ökumanninn þar sem hann hafi þurft að hafa afskipti af honum í átta til tíu skipti fyrir ölvunarakstur eða akstur sviptur ökuréttindum. Ökumaðurinn hefði meðal annars sagt honum að hann myndi aldrei hætta ð aka bifreið, jafnvel þótt hann yrði að endingu dæmdur í fangelsi fyrir það.

Héraðsdómur Reykjaness mat framburð mannsins ótrúverðugan samanborið við trúverðugan framburð þeirra lögreglumanna sem báru vitni fyrir dómi. Var maðurinn því sakfelldur fyrir þá ákæruliði sem hann hafði ekki nú þegar játað.

Var maðurinn dæmdur í sex mánaða fangelsi auk þess að hann hefur verið sviptur ökuréttindum ævilangt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×