Fótbolti

Rúnar Már kom Astana á bragðið

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Rúnar Már Sigurjónsson var á skotskónum í dag.
Rúnar Már Sigurjónsson var á skotskónum í dag. vísir/getty

Landsliðsmaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson skoraði fyrra mark Astana er liðið vann 2-0 sigur í efstu deild í Kasakstan í dag.

Astana mætti Okzhetpes í dag og vann öruggan 2-0 sigur. Var þetta fyrsti leikur Astana í deildinni síðan í mars síðastliðnum en ekkert hefur verið leikið vegna kórónufaraldarins.

Liðið datt út úr forkeppni Meistaradeildar Evrópu er þeir töpuðu 6-3 fyrir Dinamo Brest í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Þar af leiðandi fara þeir í 2. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar, líkt og KR-ingar.

Rúnar kom Astana yfir í lok fyrri hálfleiks og Didar Zhalmukan tryggði sigurinn þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Lokatölur 2-0 Astana í vil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×