Hodgson hrifinn af því sem Lampard hefur gert með Chelsea Ísak Hallmundarson skrifar 6. júlí 2020 22:00 Félagarnir Roy og Frank á góðri stund. getty/Sebastian Frej
Chelsea mætir Crystal Palace á Selhurst Park í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Crystal Palace siglir lygnan sjó í 14. sæti og er búið að bjarga sér frá falli á meðan Chelsea er í harðri Meistaradeildarbaráttu. Frank Lampard tók við stjórnartaumunum hjá Chelsea síðasta sumar en þetta er aðeins hans annað ár sem aðalþjálfari fótboltaliðs. Hann hefur gefið nokkrum ungum leikmönnum stórt hlutverk þar sem liðið var í félagsskiptabanni síðasta sumar og er liðið sem stendur í 4. sæti. Frammistaða hans hefur heillað Roy Hodgson þjálfara Palace: „Hann er að gera frábæra hluti og ég er ánægður að því hafi verið veitt eftirtekt. Félagið gerði einnig vel í að ráða ungan þjálfara og gefa honum tækifæri til að byggja upp unga leikmenn,“ sagði Hodgson. „Hann stóð með þeim í stað þess að kvarta yfir því að hin liðin hafi eytt peningum í leikmenn, það var mjög vel gert hjá Frank. Við höfum séð leikmenn eins og Mason Mount, Ross Barkley og Reece James græða á því að þjálfarinn hefur trú á þeim.“ „Ég óska Frank til hamingju með það starf sem hann hefur unnið hingað til en ég vona að ég muni ekki þurfa að óska honum til hamingju á morgun,“ sagði Roy Hodgson að lokum.
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Tekur með sér lifrarpylsu, grjónagraut og sviðasultu í bakgarðshlaupið Sport Óttast um öryggi fjölskyldunnar og neyðist til að flytja Sport Var kennari og þjálfaði karlalið þegar hann stýrði kvennalandsliðinu Fótbolti Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti Fleiri fréttir Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Ten Hag rólegur þrátt fyrir fullkomið kvöld Lið Stefáns skoraði úr sextán vítum Auðvelt á Old Trafford gegn C-deildarliðinu Ten Hag aðvarar Antony: „Verður að vinna sér inn réttinn til að spila“ Liverpool birtir áður óséð efni frá Reykjavík: „Beið í sextíu ár eftir því að sjá þetta“ „Þú færð mikið borgað svo þú mátt ekki sýna tilfinningar“ Willum Þór og félagar lögðu Hollywood-lið Wrexham Höjlund enn fjarri góðu gamni en varnarþríeykið klárt í slaginn Englandsmeistarinn Ingle með slitið krossband Fannst mark Gabriels vera ólöglegt Kærir Richarlison og sakar hann um illa meðferð Segist eiga meiri möguleika á að vinna dansþátt en Spurs að vinna titil „Arsenal spilaði eins og meistaralið“ Arteta ánægður með þroskaða frammistöðu í fjarveru lykilmanna Tvö glæsimörk skoruð í endurkomusigri Newcastle Gabriel hetjan hjá vængbrotnu liði Arsenal í nágrannaslagnum Anthony Taylor dómari sló met í gær UEFA hótar því að reka enska landsliðið af þeirra eigin EM Will Ferrell fylgdist með Leeds í fyrsta sinn Enginn varamaður skorað jafn mörg sigurmörk: „Getur orðið einn besti framherji heims“ Aston Villa með ævintýralega endurkomu gegn Everton Nkunku tryggði sigur eftir stoðsendingu Sancho Sjá meira