Arteta ánægður með þroskaða frammistöðu í fjarveru lykilmanna Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. september 2024 21:31 Mikel Arteta kampakátur eftir sigur sinna manna í nágrannaslagnum þar sem eina markið var skorað undir lok leiks. Getty/Marc Atkins Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, hrósaði sínum mönnum í hástert fyrir þroskaða frammistöðu í 0-1 sigri í nágrannaslagnum gegn Tottenham.
Arsenal var án tveggja lykilmanna á miðjunni, Martin Ödegaard var frá vegna meiðsla og Declan Rice í banni. „Við fengum nokkra skelli en liðið brást vel við og sýndi mikinn þroska. Við söknuðum lykilmanna og þurftum að bregðast við. Þetta var erfitt en ég er ótrúlega ánægður,“ sagði Arteta eftir leik. „Við þurftum að aðlaga okkur og spila öðruvísi en vanalega en þegar við vörðumst gerðum við það vel. Það eru hlutir sem mætti laga en sigur í dag var mjög mikilvægur, ég veit líka hvað þetta skiptir stuðningsmenn miklu máli þannig: Njótið!“ bætti hann svo við glaður í bragði. Arsenal fór með sigrinum upp í annað sæti deildarinnar, með tíu stig eftir fjórar umferðir. Tveimur stigum á eftir Manchester City, sem kemur í heimsókn í næstu umferð. Declan Rice verður þá löglegur aftur, en óvíst er með Martin Ödegaard og Bukayo Saka, sem fór haltrandi af velli í dag. Arteta gat ekki gefið frekari upplýsingar um stöðuna á meiðslum þeirra tveggja.
Enski boltinn Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Fleiri fréttir Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Sjá meira