Enski boltinn

Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu

Sindri Sverrisson skrifar
Erling Haaland og félagar unnu 3-0 sigur á Anfield í fyrsta leik eftir að Manchester City var dæmt sekt um yfir hundrað brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar.
Erling Haaland og félagar unnu 3-0 sigur á Anfield í fyrsta leik eftir að Manchester City var dæmt sekt um yfir hundrað brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. Getty/Robbie Jay Barratt

Flottur sigur Manchester City á Anfield í gær og önnur afrek liðsins falla nú í skuggann á umræðunni um afar umfangsmikil brot félagsins á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. En hvaða áhrif hefur umræðan á þjálfara og leikmenn liðsins?

Þetta var til umræðu í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport í gærkvöld eftir 3-0 útisigur City í gær. Fyrsta spurning á þjálfarann Enzo Maresca fyrir og eftir leik var um fjármálabrot félagsins og á leiknum sjálfum var mikið um skilaboð frá stuðningsmönnum Liverpool sem bauluðu á City-liðið í þessum fyrsta leik eftir að félagið var dæmt sekt.

„Það er auðvitað mjög einbeittur brotavilji sem liggur þarna að baki og maður skilur að það sé reiði mjög víða. En svo ertu auðvitað með leikmenn sem eru í raun saklausir af öllu svindli, bara mættir til að spila fótbolta, og þetta er auðvitað mikið högg og mikil óvissa fyrir hópinn. Þeir virðast hafa náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu. Það er spurning hvað það mun ganga lengi en það gæti hjálpað þeim tímabundið þangað til meira kemur í ljós,“ sagði Halldór Árnason í Sunnudagsmessunni en brot úr henni má sjá hér að neðan.

Klippa: Sunnudagsmessan - Dómur Manchester City

Maresca tók við City-liðinu af Pep Guardiola í sumar og fékk því í fangið risavaxið verkefni.

„Þetta er mjög skrýtið því hann virðist ekki vita hvað var að fara að gerast. Hann var ekki atvinnulaus þjálfari sem var pikkaður upp heldur hafði fyrir því að fara úr stóru starfi hjá Chelsea til að taka við þessu City-giggi. Þetta eru mjög sérstakar aðstæður fyrir bæði hann og leikmenn,“ sagði Halldór.

Leikmenn á borð við Antoine Semeny, Marc Guehi og Elliot Anderson hafa gengið til liðs við City á þessu ári.

„Þetta hlýtur að vera eitthvað sem leikmenn spurðu út í og þeir hafa fengið einhverja fullvissu um að félagið yrði ekki dæmt sekt. Þetta er fyrir þá mikið áhyggjuefni,“ sagði Albert Brynjar Ingason.

„Við vitum ekki hvenær niðurstaða kemur. Verður það eftir tímabilið? Við gætum verið að horfa á að City vinni í vor og það verður allt tryllt ef það gerist. Maður skilur reiðina alveg hundrað prósent. Enski boltinn er heilagur. Sagan skiptir máli,“ sagði Albert en umræðuna má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×