Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Sindri Sverrisson skrifar 9. október 2026 08:02 Erling Haaland segir mikilvægt að menn haldi áfram að brosa. Getty/Tom Flathers Erling Haaland er fæddur og uppalinn stuðningsmaður Manchester City og er með skýr skilaboð til annarra stuðningsmanna nú þegar félagið hefur verið dæmt fyrir umfangsmikil brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. City mætir Liverpool á sunnudaginn í fyrsta leik eftir dóminn.
City-menn áfrýjuðu dómnum í síðustu viku en ljóst er að þeir gætu átt yfir höfði sér afar þunga refsingu, til að mynda fall úr úrvalsdeildinni, ef áfrýjunin reynist árangurslaus. Fréttir af dómnum bárust fyrst á meðan Haaland og flestir liðsfélaga hans voru uppteknir með landsliðum sínum í nýafstaðinni landsleikjatörn. Daginn eftir fyrstu fréttir af dómnum átti Haaland að sitja fyrir svörum á blaðamannafundi norska landsliðsins en ekkert varð þó af því og hefur markahrókurinn ekki tjáð sig neitt um málið fyrr en nú. Viðtalið við hann má sjá hér að neðan. Klippa: Haaland tjáir sig eftir dóm Manchester City Haaland skrifaði í janúar 2025 undir samning til níu og hálfs árs við City. Aðspurður hvort hann væri, eftir þessar erfiðu síðustu vikur, með skilaboð til stuðningsmanna City sem ætluðu á Anfield á sunnudaginn svaraði Haaland: „Já, ég held að þeir eigi eftir að upplifa eitthvað skemmtilegt. Við verðum að standa saman og halda áfram að vera jákvæðir. Hvað sem gerist í lífinu verðum við að brosa. Við verðum að vera jákvæðir, horfa fram á veginn og reyna að vinna fótboltaleiki. Við verðum að njóta stöðunnar og leiksins.“ Er það lykillinn, að þið standið saman í þessu? Leikmenn, stuðningsmenn og félagið? „Já, við verðum að gera það. Við verðum að standa saman. Og við verðum að sýna hvert öðru kærleika. Svo já: Standa saman, njóta ferðalagsins og brosa,“ sagði hinn 26 ára gamli Haaland. Manhcester City er með fullt hús stiga á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir fimm umferðir. Liðið sækir Liverpool heim klukkan 15:30 á sunnudag og er leikurinn í beinni útsendingu á Sýn Sport.
Enski boltinn Manchester City Fjármál Manchester City til rannsóknar Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira