Enski boltinn

Kú­vending í máli upp­ljóstarans sem óttast um líf sitt

Aron Guðmundsson skrifar
Rui Pinto, á myndinni vinstra megin, kom upp um umtalsverð brot Manchester City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Á myndinni til hægri má sjá núverandi stjórnarformann Manchester City með fyrrverandi knattspyrnustjóra liðsins, Pep Guardiola
Rui Pinto, á myndinni vinstra megin, kom upp um umtalsverð brot Manchester City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Á myndinni til hægri má sjá núverandi stjórnarformann Manchester City með fyrrverandi knattspyrnustjóra liðsins, Pep Guardiola Vísir/Samsett

Uppljóstrarinn Rui Pinto, maðurinn á bakvið vefsíðuna Football Leaks sem lak meðal annars gögnum sem komu upp um brot Manchester City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar, fær áframhaldandi öryggisvernd í Portúgal. 

Það er The Guardian sem greinir frá en yfirvöld í Portúgal hafa komist að þeirri niðurstöðu að gefa Pinto tækifæri til þess að renna stoðum undir þá skoðun sína að hann þurfi á öryggisvernd að halda.

Í síðustu viku, í ítarlegri færslu á samfélagsmiðlinum X, sagði Rui Pinto frá því að án fyrirvara væri búið að afturkalla öryggisvernd sem hann hafði notið frá því árið 2020. Athygli vakti að ákvörðun um að afturkalla þá öryggisvernd kom stuttu eftir að dómur yfir Manchester City hafði verið staðfestur.

„Vegna stöðunnar sem upp er komin á ég engra annarra kosta völ en að flytja á óþekktan stað innan fárra daga og það um óákveðinn tíma vegna þeirra fjölmörgu líflátshótana sem ég hef fengið og þeirrar alvarlegu hættu á morðtilræði gegn mér,“ skrifaði Pinto í færslu sinni. 

Öryggisvernd Pinto átti að ljúka á morgun en nú mun hann fá tíu daga til þess að undirbúa málsvörn og freista þess að fá áframhaldandi öryggisvernd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×