Bútaði niður Vatnajökul eins og veikindin Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 16. júní 2020 19:00 Sigríður Ágústsdóttir við heimkomuna eftir að hafa þverað Vatnajökul ásamt Snjódrífunum. Vísir/Vilhelm
Ellefu konur, flestar á fimmtugsaldri slógu met þegar þær þveruðu Vatnajökul á átta dögum. Þær kalla sig Snjódrífurnar og hafa nú þegar safnað um fimm milljónum króna fyrir félögin Kraft og Líf. Sigríður Ágústsdóttir forsprakki ferðarinnar ákvað að ganga yfir Vatnajökul með Snjódrífunum þegar fimm ár voru liðin frá því hún greindist með alvarlegt krabbamein og læknar töldu að hún ætti aðeins fáein ár eftir ólifuð. Hún hefur hins vegar verið frísk í nokkur ár og kom til Reykjavíkur í dag með Snjódrífunum eftir að hafa þverað Vatnajökul á átta dögum og eytt níunda deginum í ferð til byggða. Sigríður á erfitt með að koma í orð hvern henni líður eftir áfangann. „Ég get eiginlega ekki lýst því hvernig mér líður, nema ég eigi að fara að gráta hérna. Ég er að springa úr stolti og hamingju yfir að hafa klárað þetta. Vatnajökull er táknrænn fyrir mig. Þú bútar niður verkefnið og þú getur líka bútað niður verkefni eins og að kljást við erfið veikindi og tekið þannig einn dag í einu þar til þú kemst að markinu.,“ segir hún. Vilborg Anna Gissurardóttir Annar leiðangursstjóra ferðarinnar telur að hópurinn hafi slegið met. „Ég veit alla vega ekki af stærri kvennaleiðangri sem hefur þverað Vatnajökul. Þetta er einn ótrúlegasti hópur sem ég hef ferðast með og í svona krefjandi verkefni. Það skipti engu máli hvað kom uppá. Ef einhver þurfit hjálp voru allir boðnir og búnir að hjálpa. Þetta var bara stórkostlegt ferðalag.“ segir Vilborg. Sigríður Ágústsdóttir og Vilborg Anna Gissurardóttir Snjódrífur.Vísir/Egill Þær segja að flestir dagar hafi gengið vel en ferðalagið hafi verið erfitt. „Við fórum allar að skæla þegar við komum af jöklinum eða fengum rykkorn í augun,“ segir Vilborg og hlær. Snjódrífurnar söfnuðu áheitum fyrir félögin Kraft og Líf, samhliða því að hvetja fólk til hreyfingar. Nú þegar hafa safnast um fimm milljónir króna og ennþá er hægt að styrkja málefnið.
Heilsa Ferðalög Tengdar fréttir Aldrei farið í betri ferð: Mikil samkennd og allar hjálpuðust að Snjódrífurnar eru komnar heim til sín en þær kláruðu að þvera Vatnajökul núna um helgina. Þrátt fyrir þreytu, bólgur, blöðrur og þurrar varir var létt yfir hópnum á Reykjavíkurflugvelli í morgun. 16. júní 2020 13:15 Snjódrífurnar nánast komnar á leiðarenda Snjódrífurnar eiga nú lítið eftir af rúmlega 150 kílómetra ferðalagi sínu yfir Vatnajökul. 14. júní 2020 14:26 Algjör kuldaskræfa en þverar nú Vatnajökul Kvennahópurinn sem nú þverar Vatnajökul er nú á sjöunda degi leiðangursins. Það var þungt færi hjá hópnum í gær, blöðrur og blautir fætur og kalt. Þrátt fyrir lélegt skyggni, birti þó til um miðjan dag og Snjódrífurnar gengu beint í austur átt. 13. júní 2020 17:11 Búnar með 100 kílómetra og vonast til að klára annað kvöld Gönguhópurinn Snjódrífurnar hefur nú gengið rúmlega 100 kílómetra leið yfir Vatnajökul og gerir ráð fyrir að klára annað kvöld eða á mánudagsmorgun. 13. júní 2020 14:03 Hópurinn ekki sterkari en veikasti hlekkurinn Snemma á sunnudag fór hópur kvenna af stað upp á Vatnajökul en þær ætla að þvera jökulinn á tíu dögum fyrir góð málefni. Snjódrífan Brynhildur Ólafsdóttir er fararstjóri leiðangursins ásamt Vilborgu Örnu Gissurardóttur pól- og Everestfara. 9. júní 2020 21:00 Magnað að vera á lífi og hafa heilsu til að geta í alvöru klifið þetta fjall Hulda Hjálmarsdóttir sigraðist á krabbameini fyrir 17 árum síðan. Hún er nú framkvæmdastjóri Krafts sem er að setja af stað hlaðvarpið Fokk ég er með krabbamein. Hulda tekur einnig þátt í verkefninu Lífskraftur og ætlar að þvera Vatnajökul. 7. júní 2020 09:00 Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira
Aldrei farið í betri ferð: Mikil samkennd og allar hjálpuðust að Snjódrífurnar eru komnar heim til sín en þær kláruðu að þvera Vatnajökul núna um helgina. Þrátt fyrir þreytu, bólgur, blöðrur og þurrar varir var létt yfir hópnum á Reykjavíkurflugvelli í morgun. 16. júní 2020 13:15
Snjódrífurnar nánast komnar á leiðarenda Snjódrífurnar eiga nú lítið eftir af rúmlega 150 kílómetra ferðalagi sínu yfir Vatnajökul. 14. júní 2020 14:26
Algjör kuldaskræfa en þverar nú Vatnajökul Kvennahópurinn sem nú þverar Vatnajökul er nú á sjöunda degi leiðangursins. Það var þungt færi hjá hópnum í gær, blöðrur og blautir fætur og kalt. Þrátt fyrir lélegt skyggni, birti þó til um miðjan dag og Snjódrífurnar gengu beint í austur átt. 13. júní 2020 17:11
Búnar með 100 kílómetra og vonast til að klára annað kvöld Gönguhópurinn Snjódrífurnar hefur nú gengið rúmlega 100 kílómetra leið yfir Vatnajökul og gerir ráð fyrir að klára annað kvöld eða á mánudagsmorgun. 13. júní 2020 14:03
Hópurinn ekki sterkari en veikasti hlekkurinn Snemma á sunnudag fór hópur kvenna af stað upp á Vatnajökul en þær ætla að þvera jökulinn á tíu dögum fyrir góð málefni. Snjódrífan Brynhildur Ólafsdóttir er fararstjóri leiðangursins ásamt Vilborgu Örnu Gissurardóttur pól- og Everestfara. 9. júní 2020 21:00
Magnað að vera á lífi og hafa heilsu til að geta í alvöru klifið þetta fjall Hulda Hjálmarsdóttir sigraðist á krabbameini fyrir 17 árum síðan. Hún er nú framkvæmdastjóri Krafts sem er að setja af stað hlaðvarpið Fokk ég er með krabbamein. Hulda tekur einnig þátt í verkefninu Lífskraftur og ætlar að þvera Vatnajökul. 7. júní 2020 09:00