Innlent

Segir nýja byggð í Skerjafirði atlögu gagnvart flugvellinum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, við flugvallargirðinguna í Skerjafirði. Nýja hverfið á að rísa á svæðinu fyrir innan girðingu.
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, við flugvallargirðinguna í Skerjafirði. Nýja hverfið á að rísa á svæðinu fyrir innan girðingu. Stöð 2/Einar Árnason.

Áform borgarstjórnarmeirihlutans um nýja byggð í Skerjafirði, sem kynnt verða á morgun, eru atlaga að Reykjavíkurflugvelli og skemmdarverk af stærstu gráðu, að mati Vigdísar Hauksdóttur, borgarfulltrúa Miðflokksins. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.

Það kostaði átök þegar borgin knúði fram lokun minnstu brautar vallarins til að byggja Hlíðarendahverfið. Núna er áformað að taka enn stærri sneið af vellinum en borgin kynnir á morgun áform um nýja byggð í Skerjafirði og stefnir á jarðvegsframkvæmdir fyrir lok þessa árs.

Séð yfir flugvallarsvæðið. Nýja Hlíðarendahverfið til hægri. Nýja Skerjafjarðarhverfinu er ætlað að rísa við hinn enda flugbrautarinnar, sem lokað var að kröfu Reykjavíkurborgar. Stöð 2/Einar Árnason.

„Mér líst afleitlega á þetta. Það á ekki að hreyfa við þessu svæði. Reykjavíkurborg á nóg landsvæði innan borgarmarkanna til að byggja upp.

Þetta er aðför að flugvellinum fyrst og fremst. En tilgangurinn helgar meðalið, virðist vera,“ segir Vigdís.

Friðrik Pálsson, formaður samtakanna Hjartað í Vatnsmýri, sem söfnuðu yfir sjötíu þúsund undirskriftum til stuðnings óskertum flugvelli, segir borgina sýna fluginu lítinn skilning.

Friðrik Pálsson, annar forsvarsmanna Hjartans í Vatnsmýri.Stöð 2/Einar Árnason.

„Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara. Það stendur til samkvæmt reglugerð að hann fari núna, held ég, eftir rúmt ár. En hann er ekkert að fara.

Og þá megum við heldur ekki þrengja að honum þannig að það verði margfalt dýrara fyrir þjóðina, fyrir skattborgara, að koma þessum samgöngutækjum fyrir einhversstaðar annars staðar. Það er bara ekkert í gangi. Og það er bara ekkert í boði,“ segir Friðrik.

Vigdís telur þetta nýja Skerjafjarðarhverfi brot á samningi ríkis og borgar um flugvöllinn í Vatnsmýri.

Svona á nýja Skerjafjarðarhverfið að líta út, samkvæmt deiliskipulagstillögu.Mynd/Reykjavíkurborg.

„Það er ekki verið að fara að byggja nýjan flugvöll. Þannig að þetta er hrein aðför, bæði að Reykvíkingum og landsbyggðinni,“ segir Vigdís.

Friðrik bendir á að framundan sá bylting í flugsamgöngum með tilkomu rafmagnsflugvéla.

„Það skellur yfir áður en við vitum af. Sá ferðamáti verður umhverfisvænsti ferðamáti sem hægt er að hugsa sér. Þessar vélar eru hljóðlátar, nánast hljóðlausar. Þær eru gríðarlega hagkvæmar, tugum prósenta hagkvæmari heldur en aðrar vélar.

Og ég verð að viðurkenna það að mér finnst að Reykjavíkurborg beri skyldu til þess gagnvart borgarbúum og gagnvart þjóðinni allri að kynna sér hvað er að gerast í þessum málum áður en þeir fara að þrengja meira að flugvellinum í Reykjavík,“ segir Friðrik.

„Afhverju er ekki hlustað á fagfólk í fluginu í stað þess að vera að hlusta á einhverjar nokkrar hræður niður í Ráðhúsi? Það er óskiljanlegt. Þetta er skemmdarverk af stærstu gráðu,“ segir Vigdís.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:

Sjá einnig: Svona sér Ómar sátt um flugvöll


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×