Innlent

Föngum sleppt út fyrr vegna kórónuveirunnar

Jakob Bjarnar skrifar
Fangelsið á Hólmsheiði. Í fyrsta kastinu hefur verið gripið til þess að sleppa milli tíu og tuttugu föngum lausum fyrr en til stóð vegna kórónuveirunnar.
Fangelsið á Hólmsheiði. Í fyrsta kastinu hefur verið gripið til þess að sleppa milli tíu og tuttugu föngum lausum fyrr en til stóð vegna kórónuveirunnar. visir/vilhelm

Milli tíu til tuttugu föngum verður sleppt úr afplánun fyrr en til stóð. Þetta er í fyrsta kastinu en gripið hefur verið til þessa vegna kórónuveirunnar og styttist þannig afplánun nokkurra fanga um sem nemur nokkrum mánuðum.

Páll Winkel fangelsismálastjóri segir þetta í samræmi við viðbragðsáætlun fangelsisyfirvalda sem snýr að því komi til faraldurs af því tagi sem nú er við að eiga.

„Okkar verkefni er að tryggja að fangelsi landsins geti tekið á móti nýjum föngum og gæsluvarðhaldsföngum í neyð. Í því felst að við þurfum að hafa tiltækar deildir fyrir þessa einstaklinga þannig að þeir umgangist ekki aðra fanga í fangelsinu. Vegna þess þurfum við að færa fanga til og í ákveðnum tilvikum að taka sérstaklega ákvarðanir um reynslulausnir og losun tiltekinna fanga, þó þannig að jafnræðis sé gætt innan hópsins,“ segir Páll í samtali við Vísi.

Páll Winkel fangelsismálastjóri segir að gripið hafi verið til þessa vegna mjög óvenjulegra aðstæðna sem myndast hafa í samfélaginu.Vísir/Baldur

Hann útskýrir að um sé að ræða tiltekinn hóp fanga sem falla undir þessa undanþágu og búið er að ræða við þá sem um ræðir. Þeir uppfylla að öðru leyti skilyrði til þess að fá reynslulausn.

„Það eru uppi mjög sérstakar aðstæður og þá gilda allt aðrar reglur. En, megin atriði er að halda uppi lögum og reglu í fangelsunum og það gerum við,“ segir Páll.

Samkvæmt heimildum Vísis hefur það lagst misvel í fanga aðgerðir sem gripið hefur verið til vegna kórónuveirunnar, svo sem þær að fangar fá nú ekki lengur dagleyfi og heimsóknir eru ekki leyfðar. Jafnvel svo að óróa hefur gætt. Að sögn Páls hafa fangelsisyfirvöld gert ýmislegt til að mæta þessu.

„Svo sem auka aðgengi að síma og fjarfundabúnaði til að gera þeim lífið bærilegra.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×