Innlent

Annar fluttur frá Bolungarvík á gjörgæslu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Gylfi Ólafsson, forstjóri heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, greindi frá þessu í beinni útsendingu í kvöld.
Gylfi Ólafsson, forstjóri heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, greindi frá þessu í beinni útsendingu í kvöld. skjáskot

Þó svo að ástandið á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík teljist ekki gott þá er það orðið stöðugt, eftir að þar blossaði upp kórónuveiruhópsýking. Greint var frá því í gær að þar hafi heimilsmaður látist vegna kórónuveirusýkingar, einn sjúklingur var fluttur á gjörgæslu á Akureyri í gær og annar nú seinni partinn til innlagnar á Landspítalann.

Þetta er meðal þess sem fram kom í máli Gylfa Ólafssonar, forstjóra heilbrigðisstofnunnar Vestfjarða, í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Meiri ró er komin á starfsemi Bergs eftir að þangað barst liðsauki bakvarðasveitar heilbrigðisstarfsfólks. Fjórir heimilismenn á Bergi í Bolungarvík eru með staðfest Covid-19 smit, sex starfsmenn eru með staðfest smit og sæta einangrun heima hjá sér og 23 starfsmenn til viðbótar eru ýmist í sóttkví eða einangrun.

Gylfi segir að þetta sé erfitt ástand fyrir heimilsfólk, því sé nú sinnt af starfsfólki sem það þekkir ekki. Ekki bæti úr skák að starfsfólkið er í hlífðarbúnaði frá toppi til táar. „Eins og grænar geimverur inni á heimili þeirra,“ eins og Gylfi lýsti því.

Sjá einnig: Birtir til á Bergi eftir að liðsauki barst að sunnan

Þar að auki getur heimisfólk á Bergi ekki verið saman á kaffistofunni eða hitt ættingja sína. Því segir Gylfi að stuðst sé við síma, spjaldtölvu og aðrar tæknilausnir svo að heimilismenn geti átt í samskiptum við aðstandendur. Þar að auki sé hægt að fara upp á svalir hússins eða tala við fólk fyrir utan í gegnum glugga.

Gylfi segir að sama skapi að smituðum hafi ekki fjölgað mikið upp á síðkastið eftir að samkomutakmarkanir voru hertar. Nú mega aðeins fimm koma saman þar. „Okkur sýnist við vera að ná utan um ástandið, bæði inni á Bergi og úti í samfélaginu,“ segir Gylfi.

Hann bætir þó við að nú sé liðinn svo langur tími að þau sem veiktust fyrst í umræddri hópsýkingu á Bergi gætu verið að fá alvarlegri einkenni. Í því samhengi nefnir Gylfi að einn sjúklingur hafi verið fluttur á gjörgæslu á Akureyri í gær og annar nú seinni partinn á Landspítalann.

Viðtalið við Gylfa má nálgast í heild hér að neðan.


Tengdar fréttir

Kominn í öndunarvél á gjörgæslu á Akureyri

Karlmaður á sextugsaldri sem fluttur var með sjúkraflugi á vegum Mýflugs frá Ísafirði til Akureyrar í gærkvöldi er kominn í öndunarvél á sjúkrahúsinu á Akureyri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×