Jóhannes grunar að eitrað hafi verið fyrir sér eftir starfslokin hjá Samherja Birgir Olgeirsson og Kristín Ólafsdóttir skrifa 1. desember 2019 11:13 Jóhannes Stefánsson í þættinum Kveiki í gærkvöldi. RÚV
Jóhannes Stefánsson, uppljóstrari og fyrrverandi stjórnandi hjá Samherja í Namibíu, grunar að eitrað hafi verið fyrir sér eftir að hann hætti störfum hjá fyrirtækinu í desember árið 2016. Þessu greinir Jóhannes frá í viðtali við sjónvarpsstöðina Al Jazeera, sem birti í dag umfangsmikla umfjöllun sína um Samherjamálið í Namibíu undir titlinum „The Anatomy of a Bribe“. Í umfjölluninni segir að Jóhannes Stefánsson hafi ákveðið að segja upp hjá Samherja árið 2016. Samherji hefur haldið því fram að fyrirtækið hafi sagt Jóhannesi upp fyrir að misfara með fé og hegða sér með óforsvaranlegum hætti. Jóhannes kveðst hafa ákveðið í kjölfar starfslokanna að uppljóstra um starfsemi Samherja í Namibíu og lét WikiLeaks fá þrjátíu þúsund gögn, sem hlutu nafið Fishrot Files. Gögnin varpa ljósi á það sem fram kom í umfjöllun Kveiks og Stundarinnar um Samherjamálið í byrjun nóvember; hvernig Samherji eigi að hafa beitt sér með ólöglegum og ólögmætum hætti til að sölsa undir sig gjöful fiskimið undan ströndum Namibíu. Jóhannes lýsir því í samtali við Al Jazeera að honum hafi fljótlega orðið ljóst, og raunar verið varaður við því, að hann væri í mikilli hættu sem uppljóstrari. Stuttu eftir starfslokin hjá Samherja segir hann að heilsu hans hafi byrjað að hraka. Hann hafi fengið flog, aðsvif og óstjórnlegan skjálfta. Hann segist hafa farið til læknis í Höfðaborg í Suður-Afríku, sem hafi ekki fundið neina skýringu á einkennunum.Hákarlarnir svokölluðu sjást hér á mynd. Frá vinstri eru Sacky Shanghala, Tamson Hatukuilipi og James Hatukuilipi. Tamson sendi Al Jazeera eiðsvarna yfirlýsingu frá vini Jóhannesar, sem sá síðarnefndi segir innihalda falskar ásakanir.Vísir/HafsteinnÞá hafi hann einnig farið til læknis á Íslandi og sá hafi tjáð honum að einkennin kæmu heim og saman við einkenni einstaklings sem eitrað hafi verið fyrir. Engin greining á kvillum Jóhannesar liggur þó fyrir. Jóhannesi batnaði á endanum. Því er lýst í umfjöllun Al Jazeera að nánir vinir hans hafi fylgst „furðulostnir“ með bataferlinu – þeir hafi allt eins átt von á því að veikindin drægju hann til dauða. „Grunsemdir Jóhannesar um að honum hafi verið eitrað hafa hreiðrað um sig í huga hans síðan hann yfirgaf Afríku í ársbyrjun 2017, en ekki hefur verið hægt að henda reiður á staðfestum sönnunum, svo ekki sé minnst á vísbendingar um sökudólgana,“ segir í umfjöllun Al Jazeera.Eiðsvarin yfirlýsing um fíkn í eiturlyf og vændiskonur Skömmu eftir að Al Jazeera komst í samband við Jóhannes fóru blaðamönnunum að berast upplýsingar um Jóhannes. Þar á meðal frá einum hákarlanna, Tamson 'Fitty' Hatuikulippi, tengdasyni fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Namibíu. Sá sendi Al Jazeera eiðsvarna yfirlýsingu frá vini Jóhannesar í Höfðaborg, Christian Yema Y‘Okungo, fyrrverandi hermanni frá Kongó. Í yfirlýsingu Christians var því haldið fram að Jóhannes ætti við áfengis- og eiturlyfjafíkn að stríða. Þá kom þar einnig fram að Jóhannes skuldaði hórmöngurum í undirheimum Höfðaborgar gríðarháar fjárhæðir vegna meintrar „fíknar“ hans í vændiskonur. Jóhannes neitar þessum ásökunum staðfastlega. Þá er haft eftir Christian að hann hafi verið neyddur með hótunum til að til að skrifa undir yfirlýsinguna. Þar hafi enn fremur verið að finna falskar ásakanir á hendur Jóhannesi.Vefumfjöllun Al Jazeera má nálgast hér. Í spilaranum hér að neðan má sjá umfjöllunina í heild sinni.
Namibía Samherjaskjölin Tengdar fréttir Saxast á yfirburði SWAPO í skugga Samherjamálsins Namibíski stjórnmálaflokkurinn SWAPO, sem haldið hefur um stjórnartaumana í landinu síðan það öðlaðist sjálfstæði árið 1990, vann kosningarnar sem haldnar voru á miðvikudag í Namibíu. 1. desember 2019 08:26 Sex leiddir fyrir dómara í Namibíu vegna Samherjamálsins Sexmenningarnir sem grunaðir eru um spillingu, fjársvik og peningaþvætti í Namibíu í tengslum við Samherjamálið voru leiddir fyrir dómara í morgun. 28. nóvember 2019 13:35 Ekki bjartsýnn á að dreginn verði lærdómur Siðfræðingur segir framgöngu Samherja í Namibíu siðferðislega ámælisverða. Segir hann óhuganlegt hversu vel þeir hafi kunnað að kaupa velvild kjörinna fulltrúa. 14. nóvember 2019 07:00 „Ásakanir Samherja í garð fréttamannsins um ósannindi eru fráleitar“ Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri og ritstjóri fréttaskýringaþáttarins Kveiks, segir fullyrðingar Samherja síðustu daga um meintar rangfærslur RÚV ekki eiga við rök að styðjast. 29. nóvember 2019 00:07 Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Fleiri fréttir EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Sjá meira
Saxast á yfirburði SWAPO í skugga Samherjamálsins Namibíski stjórnmálaflokkurinn SWAPO, sem haldið hefur um stjórnartaumana í landinu síðan það öðlaðist sjálfstæði árið 1990, vann kosningarnar sem haldnar voru á miðvikudag í Namibíu. 1. desember 2019 08:26
Sex leiddir fyrir dómara í Namibíu vegna Samherjamálsins Sexmenningarnir sem grunaðir eru um spillingu, fjársvik og peningaþvætti í Namibíu í tengslum við Samherjamálið voru leiddir fyrir dómara í morgun. 28. nóvember 2019 13:35
Ekki bjartsýnn á að dreginn verði lærdómur Siðfræðingur segir framgöngu Samherja í Namibíu siðferðislega ámælisverða. Segir hann óhuganlegt hversu vel þeir hafi kunnað að kaupa velvild kjörinna fulltrúa. 14. nóvember 2019 07:00
„Ásakanir Samherja í garð fréttamannsins um ósannindi eru fráleitar“ Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri og ritstjóri fréttaskýringaþáttarins Kveiks, segir fullyrðingar Samherja síðustu daga um meintar rangfærslur RÚV ekki eiga við rök að styðjast. 29. nóvember 2019 00:07