Taldi sér ógnað með orðum Trump við Úkraínuforseta Kjartan Kjartansson skrifar 5. nóvember 2019 11:45 Marie Yovanovitch (f.m.) hefur starfað fyrir bandarísku utanríkisþjónustuna um árabil. Hún var kölluð heim í skyndi í maí eftir ófrægingarherferð persónulegs lögmanns Trump forseta gegn henni. AP/Manuel Balce Ceneta
Fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu taldi sér ógnað þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði Úkraínuforseta að hún ætti eftir að „lenda í ýmsu“ í sumar. Eftirrit af framburði sendiherrans og fyrrverandi embættismanns utanríkisþjónustunnar fyrir þingnefndum sem rannsaka möguleg embættisbrot Trump hafa nú verið gerð opinber. Rannsókn þriggja nefnda fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á því hvort að Trump hafi framið brot í embætti þegar hann þrýsti á úkraínsk stjórnvöld að rannsaka pólitíska andstæðinga hans hefur fram að þessu farið fram fyrir luktum dyrum. Nefndirnar birtu í fyrsta skipti í gær eftirrit af framburði Marie Yovanovitch, sem Trump rak sem sendiherra í Kænugarði í maí, og Michael McKinley, fyrrverandi ráðgjafa Mike Pompeo, utanríkisráðherra, sem sagði af sér vegna ósættis við hvernig farið var með Yovanovitch. Í framburðinum lýsti Yovanovitch ófrægingarherferð sem Rudy Giuliani, persónulegur lögmaður Trump forseta, og samverkamenn hans stóðu fyrir til að ryðja henni úr vegi. Giuliani, í samstarfi við úkraínskan saksóknara, hafi um margra vikna skeið grafið undan henni við Trump forseta sem lét á endanum kalla hana heim frá Kænugarði. Í frægu símtali Trump og Volodímírs Zelenskíj, forseta Úkraínu, í júlí sagði Bandaríkjaforseti að Yovanovitch væri „slæmar fréttir“ og að hún ætti eftir að „lenda í ýmsu“. Yovanovitch bar vitni um að hún hefði haft miklar áhyggjur þegar hún las þau ummæli Trump og hún hefði þær enn. Játaði hún því að henni hafi fundist sér ógnað, að því er segir í frétt Washington Post. Trump hélt því engu að síður fram við fréttamenn í gær að hann þekkti Yovanovitch „eiginlega ekki“ en að hún væri örugglega sómakona. Giuliani hefur undanfarin misseri reynt að afla skaðlegra upplýsinga um mögulegan mótframbjóðanda Trump í Úkraínu. Trump virðist hafa treyst honum fyrir utanríkisstefnu Bandaríkjanna gagnvart Úkraínu að miklu leyti á meðan.AP/Andrew Harnik Giuliani og úkraínskur saksóknari vildu ryðja henni úr vegi Yovanovitch var fengin til að framlengja dvöl sína sem sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu fyrr á þessu ári. Í maí var hún hins vegar kölluð heim fyrirvaralaust. Henni var skipað að taka fyrstu flugvél heim til Bandaríkjanna en við heimkomuna var henni tjáð að hún hefði ekkert gert rangt. Trump forseti hefði misst traust til hennar og staða hennar væri því ekki lengur sætt í embætti. Fyrir þingnefndunum bar hún vitni um að hún hafi fyrst orðið þess áskynja að eitthvað væri á seyði síðla árs í fyrra þegar úkraínskir embættismenn gáfu henni óljósar viðvaranir um að Giuliani og Júrí Lútsenkó, þáverandi ríkissaksóknari Úkraínu, ættu í ráðabruggi, meðal annars um að gera henni eitthvað. Á þeim tíma hafði bandaríska sendiráðið í Úkraínu verið afar gagnrýnið á störf Lútsenkó sem það taldi ekki standa sig í að uppræta spillingu og hjálpa til við að endurheimta um 40 milljarða dollara sem spilltir embættismenn voru taldir hafa dregið að sér í tíð Viktors Janúkóvitsj, fyrrverandi forseta. Vegna þessa sagði Yovanovitch telja að Lútsenkó, í samstarfi við Giuliani, hafi viljað koma á hana höggi. Samkurl tvímenninganna taldi sendiherrann ganga gegn stefnu Bandaríkjastjórnar um að uppræta spillingu í Úkraínu og þeir hafi greinilega vilja fara í kringum formlegar samskiptaleiðir stjórnvalda. Í framhaldinu hafi þeir hafið ófrægingarherferð gegn henni. Hún hafi verið sökuð um að grafa undan stefnu Trump forseta og að láta Lútsenkó fá lista yfir spillta embættismenn sem hann mætti ekki sækja til saka. Yovanovitch hafnaði þeim ásökunum algerlega. Lútsenkó hefur sjálfur dregið í landi með það síðarnefnda. Gordon Sondland ráðlagði Yovanovitch að ausa lofi yfir Trump á Twitter til að binda enda á undirróður gegn henni. Trump fól Sondland síðar að sjá um samskipti við Úkraínu.AP/Virginia Mayo Var ráðlagt að mæra Trump á samfélagsmiðli Síðar, þegar sendiráðið lagðist gegn því að Viktor Sjokín, annar úkraínskur saksóknari, fengi vegabréfsáritun til Bandaríkjanna vegna tengsla hans við spillingu segir Yovanovitch að Giuliani hafi klagað hana beint til Hvíta hússins. Giuliani hafi sagt Trump að sendiherrann í Kænugarði hefði stöðvað för Úkraínumanns sem gæti séð honum fyrir „upplýsingum um spillingu í sendiráðinu, þar á meðal mína spillingu“, sagði Yovanovitch þingmönnum. Kvartanir hennar til utanríkisráðuneytisins báru engan árangur. Yovanovitch sagði að Mike Pompeo, utanríkisráðherra, eða einhver ráðgjafa hans hafi meðal annars hringt í Sean Hannity, þáttastjórnanda á Fox-sjónvarpsstöðinni og einarðan stuðningsmann Trump, til að komast að því hvað væri í gangi varðandi undirróður gegn sendiherranum og biðja þá um að hætta honum ef þeir hefðu ekki sannanir. Til þess að bæta stöðu sína gagnvart Trump forseta og stöðva árásirnar var Yovanovitch ráðlagt að tísta lofi um forsetann. „Þú verður, þú veist, að tísta því út að þú styðjir forsetann og að [fullyrðingar um óhollustu] séu lygar,“ ráðlagði Gordon Sondland, sendiherra Bandaríkjanna gagnvart Evrópusambandinu. Það taldi Yovanovitch ekki samræmast embætti hennar sem sendiherra. Eftir að Yovanovitch var kölluð heim fól Trump Sondland og Kurt Volker, þáverandi sendifulltrúa Bandaríkjanna vegna átakanna í Austur-Úkraínu, að vinna með Giuliani að samskiptum við úkraínsk stjórnvöld. Áður en það gerðist segir Yovanovitch að Arsen Avakov, innanríkisráðherra Úkraínu, hafi varað hana við því hvað Giuliani og félagar væru að gera á bak við tjöldin. Avakov hafi óttast að Úkraína yrði að peði í innanríkisstjórnmálum Bandaríkjanna. Hann hafi sagt að Giuliani og samverkamenn hans væru að reyna að finna skaðlegar upplýsingar um Joe Biden, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna. Avakov hafi jafnframt varað hana við því að Giuliani og félagar vildu losna við hana og að hún skyldi gæta sín. Tveimur mánuðum síðar var Yovanovitch látin taka poka sinn. Michael McKinley, fyrrverandi aðalráðgjafi Pompeo utanríkisráðherra, sagði af sér vegna óánægju með viðbrögð ráðuneytisins við þrýstingnum á sendiherrann í Úkraínu.Vísir/EPA Vitnisburður ráðgjafa stangast á við yfirlýsingar utanríkisráðherrans McKinley, fyrrverandi ráðgjafi Pompeo utanríkisráðherra, sagði þingnefndunum að hann hefði hvatt til þess að ráðuneytið gæfi út yfirlýsingu til stuðnings Yovanovitch í vor. Hann hafi meðal annars nefnt þá hugmynd beint við Pompeo í september eftir að Hvíta húsið birti minnisblað um símtal Trump og Zelenskíj þar sem Bandaríkjaforseti fór niðrandi orðum um sendiherrann. Pompeo hafi ekki brugðist við. Sá framburður stangast á við það sem Pompeo hefur sagt opinberlega um að McKinley hafi aldrei nefnt það við sig að lýsa yfir stuðningi við Yovanovitch. McKinley sagði af sér í haust, ósáttur við hvernig utanríkisráðuneytið kom fram við embættismenn sem lentu á milli steins og sleggju í þrýstingsherferð bandamanna Trump í Úkraínu. Lev Parnas, samverkamaður Giuliani, ætlar að vinna með þingnefndum sem rannsaka möguleg embættisbrot Trump í samskiptum við Úkraínu.AP/Mark Lennihan Samverkamaður Giuliani fellst á að vinna með rannsókninni Giuliani er persónulegur lögmaður Trump en vinnur launalaust fyrir forsetann. Vitni í rannsókn þingsins hafa greint frá því að hann hafi rekið nokkurs konar skuggautanríkisstefnu sem miðaði að því að tryggja Trump persónulegan pólitískan greiða frá úkraínskum stjórnvöldum. Þrátt fyrir störf sín fyrir Bandaríkjaforseta hefur Giuliani haldið áfram störfum fyrir aðra skjólstæðinga, þar á meðal erlenda. Hann hefur í gegnum tíðina haft umsvif í Úkraínu. Tveir samverkamenn hans í þrýstingsherferðinni á úkraínsk stjórnvöld voru handteknir í síðasta mánuði, grunaðir um ólögleg kosningaframlög. Annar þeirra, Lev Parnas, er nú sagður hafa fallist á að bera vitni fyrir þingnefndunum og afhenda þeim gögn í tengslum við rannsóknina á Trump forseta. Reuters-fréttastofan segir það vera sinnaskipti því Parnas hafi hafnað samvinnu við nefndirnar í október. Parnas er sagður hafa hjálpað Giuliani að koma á fundum með úkraínskum embættismönnum. Parnas lýsti sig saklausan af ákæru um að hafa átt í samsæri um að nota skúffufyrirtæki til að gefa pólitískri aðgerðanefnd sem styður Trump forseta fé og að safna fé ólöglega fyrir fyrrverandi þingmanna repúblikana til að liðka fyrir því að Trump ræki Yovanovitch sendiherra. Á sama tíma og Giuliani vann að því að fá úkraínsk stjórnvöld til að rannsaka Biden og stoðlausa samsæriskenningu um Demókrataflokkinn í Úkraínu reyndu Parnas og tveir samverkamenn hans að komast til áhrifa í úkraínsku gasfyrirtæki.
Bandaríkin Donald Trump Ákæruferli þingsins gegn Trump Úkraína Tengdar fréttir Otuðu sínum tota á meðan Trump sakaði Biden um spillingu Bandarískir athafnamenn notfærðu sér tengsl við Trump forseta og lögmann hans til að reyna að koma ár sinni fyrir borð hjá stóru úkraínsku orkufyrirtæki. 8. október 2019 11:58 Boða fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump fyrir þingnefndirnar John Bolton ætlar ekki að koma sjálfviljugur fyrir nefndirnar en lögmaður hans segist tilbúinn að taka við stefnu. Bolton gæti verið lykilvitni um nokkur atriði í samskiptum Trump-stjórnarinnar við Úkraínu. 30. október 2019 23:45 Trump skipaði Perry að vinna með Giuliani í Úkraínu Í viðtali skýrir orkumálaráðherra Bandaríkjanna frekar hversu mikil áhrif persónulegur lögmaður Trump forseta hafði á stefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart Úkraínu. 17. október 2019 11:15 Sendiherra ekki viss um hvort Trump sagði satt um Úkraínu Utanríkisráðuneytið bannaði sendiherra Bandaríkjanna við ESB að bera vitni en hann er engu að síður ætla að koma fyrir þingnefnd í vikunni. 14. október 2019 12:30 Segir Trump hafa ýtt á eftir því að henni yrði vikið úr starfi sendiherra í Úkraínu Donald Trump Bandaríkjaforseti þrýsti á Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna að víkja sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu úr embætti sínu. Frá þessu greindi fyrrverandi sendiherrann Marie Yovanovitch í yfirheyrslum vegna rannsóknar Bandaríkjaþings á meintum brotum Trump í starfi er viðkoma Úkraínu-skandalnum sem tröllríður pólítískri umræðu vestanhafs. 12. október 2019 14:18 Mest lesið Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” Innlent Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Innlent Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Innlent „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Erlent Fleiri fréttir Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Sjá meira
Otuðu sínum tota á meðan Trump sakaði Biden um spillingu Bandarískir athafnamenn notfærðu sér tengsl við Trump forseta og lögmann hans til að reyna að koma ár sinni fyrir borð hjá stóru úkraínsku orkufyrirtæki. 8. október 2019 11:58
Boða fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump fyrir þingnefndirnar John Bolton ætlar ekki að koma sjálfviljugur fyrir nefndirnar en lögmaður hans segist tilbúinn að taka við stefnu. Bolton gæti verið lykilvitni um nokkur atriði í samskiptum Trump-stjórnarinnar við Úkraínu. 30. október 2019 23:45
Trump skipaði Perry að vinna með Giuliani í Úkraínu Í viðtali skýrir orkumálaráðherra Bandaríkjanna frekar hversu mikil áhrif persónulegur lögmaður Trump forseta hafði á stefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart Úkraínu. 17. október 2019 11:15
Sendiherra ekki viss um hvort Trump sagði satt um Úkraínu Utanríkisráðuneytið bannaði sendiherra Bandaríkjanna við ESB að bera vitni en hann er engu að síður ætla að koma fyrir þingnefnd í vikunni. 14. október 2019 12:30
Segir Trump hafa ýtt á eftir því að henni yrði vikið úr starfi sendiherra í Úkraínu Donald Trump Bandaríkjaforseti þrýsti á Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna að víkja sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu úr embætti sínu. Frá þessu greindi fyrrverandi sendiherrann Marie Yovanovitch í yfirheyrslum vegna rannsóknar Bandaríkjaþings á meintum brotum Trump í starfi er viðkoma Úkraínu-skandalnum sem tröllríður pólítískri umræðu vestanhafs. 12. október 2019 14:18