Manchester City náði jafntefli á Ítalíu með Kyle Walker í markinu Anton Ingi Leifsson skrifar 6. nóvember 2019 21:45 Walker í markinu í kvöld. vísir/getty Manchester City steig stórt skref í átt að 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld er liðið gerði 1-1 jafntefli við Atalanta á útivelli. Það stefndi í markasúpu er Raheem Sterling skoraði strax á sjöundu mínútu eftir laglegt samspil og flestir héldu þá að City myndi ganga á lagið. Þeir fengu vítaspyrnu á 43. mínútu. Á punktinn steig Gabriel Jesus en hann skaut boltanum framhjá. Hörmuleg vítaspyrna og 1-0 í hálfleik.MISSED! It's a shocking penalty from Gabriel Jesus. He fires it well wide of the post. https://t.co/rZSyU3uVtd — BBC Sport (@BBCSport) November 6, 2019 Í hálfleiknum fór Ederson af velli og í markið kom Claudio Bravo. Á fjórðu mínútu síðari hálfleiks jafnaði Mario Pasalic metin með glæsilegum skalla. Þegar níu mínútur voru eftir fór Bravo í glæfralegt úthlaup sem endaði með því að Bravo gerðist brotlegur og var sendur í sturtu. City markmannslausir og Kyle Walker var sendur af bekknum til þess að fara í markið.Kyle Walker has now made more saves (1) than Ederson and Claudio Bravo combined (0) vs. Atalanta. Start him at Anfield. pic.twitter.com/t9eR6Qr2s2 — Squawka Football (@Squawka) November 6, 2019 Hann fékk ekkert mark á sig á þeim fimmtán mínútum sem voru eftir og lokatölur 1-1. City á toppi riðilsins með tíu stig en Atalanta er á botninum með eitt stig. Meistaradeild Evrópu
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti