Talin hafa sent átta burðardýr til landsins með kókaín í nærbuxunum Kristín Ólafsdóttir skrifar 5. júlí 2019 15:51 Rússneskt par hefur verið ákært fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa fengið átta einstaklinga til að flytja inn tvö og hálft kíló af kókaíni innanklæða í nærbuxum þeirra. Vísir/Vilhelm
Rússneskt par hefur verið ákært fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa fengið átta einstaklinga til að flytja inn tvö og hálft kíló af kókaíni innanklæða í nærbuxum þeirra. Um var að ræða fimm ferðir sem farnar voru á tímabilinu frá 25. júlí 2017 til 5. september 2018. Þetta kemur fram í ákæru á hendur manninum, sem vísað er til í vikugömlum Landsréttarúrskurði þar sem gæsluvarðhald yfir honum var framlengt. RÚV greindi fyrst frá málinu í dag. Fólkinu er einnig gefið að sök að hafa í ágúst árið 2017 reynt að flytja rúm 550 grömm af kókaíni hingað til lands, falin í barnakerru. Fíkniefnin voru haldlögð í Þýskalandi. Þá er rakið í ákærunni að maðurinn hafi yfirgefið landið í janúar 2017 og ekkert spurst til hans fyrr en í desember 2018 þegar hann var handtekinn í Leifsstöð. Svo virðist sem maðurinn hafi komið hingað til lands með skilríkjum annars manns.
Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Innlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Erlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Innlent Fleiri fréttir Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Mál Margeirs til Landsréttar Fjármálaráðherra ánægður með söluna á Íslandsbanka Hvetja kattaeigendur til að setja kettina í útivistarbann „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Sjá meira