Hringdi bjöllunni um miðja nótt og sagðist vera sölumaður Kristín Ólafsdóttir skrifar 14. mars 2019 07:39 Grunsamlegi sölumaðurinn var á ferð í Garðabæ í nótt. Vísir/vilhelm
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um grunsamlegan mann á ferð í Garðabæ á þriðja tímanum í nótt. Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi hringt dyrabjöllu í húsi og orðið vandræðalegur þegar húsráðandi kom til dyra, „eins og hann hafi ekki búist við að fólk væri heima“. Maðurinn kvaðst þá vera í söluerindum og sagðist hafa farið húsavillt. Hann fannst skömmu síðar þar sem hann sat í bifreið. Maðurinn var handtekinn, grunaður um nytjastuld bifreiðar, brot á vopnalögum og vörslu fíkniefna, og vistaður í fangageymslu. Á sjötta tímanum í gær var svo tilkynnt um mann að stela úr verslunum í hverfi 105 og 108. Maðurinn var handtekinn skömmu síðar og ætluðu þýfi sem hann hafði í fórum sínum var skilað aftur í verslanir. Maðurinn var vistaður í fangageymslu á meðan mál hans var unnið en síðar sleppt. Laust eftir klukkan ellefu í gærkvöldi var tilkynnt um eld í bát í hverfi 104. Enginn eldur var sjáanlegur en mikinn reyk lagði frá bátnum. Talið er að reykurinn hafi átt upptök sín í rafgeymum en ekki er vitað um tjón.
Garðabær Lögreglumál Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira