Lægstu gjöldin í Reykjavík
Miðað við 8 tíma (almennt gjald) eru lægstu gjöldin í Reykjavík, 25.963 kr. en þau hæstu í Garðabæ, 39.618 kr. Fyrir forgangshópa (8 tímar m. fæði) eru gjöldin lægst í Reykjavík. 17.259 kr. en hæst hjá Sveitarfélaginu Árborg 29.241 kr. Níu tíma vistun með fæði fyrir forgangshópa kostar mest í Kópavogi, 34.387 kr. en minnst í Reykjavík, 21.512 kr. en almennt gjald fyrir 9 tíma vistun er hæst í Fljótsdalshéraði, 46.770 kr. en lægst á Seltjarnarnesi, 29.249 kr.13 af 16 sveitarfélögum hækka leikskólagjöldin (m. fæði) milli ára en hækkunin nam oftast um 2-3 %. Mestu hækkanirnar á 8 tíma gjaldi m. mat eru á Seltjarnarnesi, 5% almennt gjald og 5,4% fyrir forgangshópa og hjá Fljótsdalshéraði 4,2% á almennu gjaldi og 5% hjá forgangshópum.
Mestu lækkanirnar eru hjá Fjarðarbyggð eða 4,1% á 8 tímum m. mat og 5,3% lækkun á sama gjaldi fyrir forgangshópa. Mesta hækkun á tímagjaldi er 4% hækkun á Seltjarnarnesi en mesta lækkun er 11,8% á tímagjaldi fyrir forgangshópa í Skagafirði.
Mesta hækkun á matargjaldi er 12,8% hjá Fljótsdalshéraði en mesta lækkun á sama gjaldi er 16,6% í Fjarðarbyggð.
8 tímar dýrastir í Garðabæ
Mikill munur er á leikskólagjöldum sveitarfélaganna en 53% munur er á hæstu og lægstu almennu gjöldunum, 8 tímum með fæði eða 13.655 kr á mánuði sem jafngildir 150.205 kr. á ári. Hæst eru gjöldin í Garðabæ 39.618 en þau hækkuðu um 3% um áramótin. Næst hæst eru þau á Fljótsdalshéraði, 38.783 kr. þar sem þau hækkuðu um 4,2% um áramót en þriðju hæst eru leikskólagjöldin á Akranesi, 37.170 kr. en þau hækkuðu um 3% um áramót.Lægst eru gjöldin í Reykjavík, 25.963 þrátt fyrir 2,9% hækkun og næst lægst á Seltjarnarnesi, 27.180 kr. eftir 5% hækkun um áramótin. Mesta hækkunin var á Seltjarnarnesi en mesta lækkunin í Fjarðarbyggð, 4,1% sem er með sjöttu ódýrustu gjöldin.

Hæstu gjöldin fyrir forgangshópa í Árborg
Heildarmyndin breytist töluvert þegar gjöld fyrir forgangshópa eru skoðuð en meðal þeirra sem tilheyra þeim hópi eru einstæðir foreldrar, námsmenn og öryrkjar. Hæstu gjöldin fyrir þennan hóp miðað við 8 tíma með fæði eru hjá Sveitarfélaginu Árborg, 29.241 kr. eftir 3,61% hækkun um áramótin og næst hæstu gjöldin eru í Vestmanneyjum, 29.057 kr. eftir 3,81% hækkun. Reykjanesbær er með þriðju hæstu gjöldin eða 30 kr. lægri en Vestmanneyjar, 29.027 kr. eftir 2,99% hækkun. Mesta hækkunin milli ára hjá þessum hópi er á Seltjarnarnesi eða 5,41 % sem er þrátt fyrir það með næst lægstu gjöldin og næst mesta hækkunin er hjá Fljótsdalshéraði, 4,98% sem er með fjórðu hæstu gjöldin. Gjöldin lækka mest í Fjarðarbyggð um 5,35% og næst mest í Skagafirði um 5,34%. Munurinn á hæstu og lægstu gjöldum er 69% eða 11.982 kr. sem gerir 131.802 kr. á ári.
9 tímar 44% dýrari en 8 tímar í Kópavogi
Margir foreldrar nýta sér að geta haft börnin í 9 tíma á leikskóla til að auðveldara sé að samræma vistunartíma barna við vinnutíma og getur það jafnvel verið nauðsynlegt fyrir suma eins og einstæða foreldra. Níundi tíminn er hins vegar mjög dýr í mörgum tilfellum og getur hækkað leikskólagjöldin töluvert. Lægstu almennu gjöldin fyrir 9 tíma með fæði eru á Seltjarnarnesi, 30.685 kr. þrátt fyrir 4,9% hækkun en þau hæstu í Fljótsdalshéraði, 48.522 kr. eftir 3,7% hækkun.
Systkinaafslættir
Systkinaafslættir er eitt af því sem getur haft mikil áhrif ef fólk er með fleira en eitt barn á leikskóla. Afslátturinn er mismikill eftir sveitarfélögum eða frá 25-75% fyrir annað barn og 75-100% afsláttur fyrir þriðja barn.Verðlagseftirlit ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrám fyrir vistun og fæði í leikskólum hjá 16 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1. janúar 2018 til 1. janúar 2019.
Sjá samanburð á leikskólagjöldum 2018 og 2019 hér.