Gripið í tómt í fjársjóðsskipinu Garðar Örn Úlfarsson skrifar 27. október 2018 08:00 Varðskipsmenn á Þór fylgdust með upphafi aðgerða rannsóknaskipsins Seabed Worker. MYND/Landhelgisgæslan
Leit að gulli í flaki þýska flutningaskipsins SS Minden virðist lokið án þess að leiðangursmenn hefðu nokkuð upp úr krafsinu. Talsverð athygli beindist að leiðöngrum breska fyrirtækisins Advanced Marine Services (AMS) að SS Minden sem áhöfnin sökkti í september 1939 um 120 sjómílum undan Íslandi til að forða því frá að falla í hendur Breta. Í erindi til Umhverfisstofnunar í fyrra sagði AMS að gull kynni að leynast í hirslu í Minden og sendi stofnuninni mynd sem tekin var í flakinu og sýndi skáp eða kassa í póstherbergi skipsins. Miðað við málin á skápnum mátti áætla að í honum rúmaðist gull fyrir jafnvirði um tólf milljarða króna.Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.AMS fékk leyfi til að rjúfa gat á Minden og hófst handa í nóvember 2017 en varð frá að hverfa vegna veðurs. Þráðurinn var tekinn upp að nýju 19. júní í sumar. Stóðu aðgerðir við Minden fram til 10. júlí. Minden hvílir á 2.240 metra dýpi og því um flókna og afar dýra aðgerð að ræða. Ef marka má skýrslu sem nú hefur verið skilað til Umhverfisstofnunar gripu útsendarar AMS í tómt í iðrum Minden. „Vinnan hélt áfram til 19.30 þann 10. júlí þegar lokaskoðun var gerð. Það var þá staðfest að engir verðmætir hlutir fundust,“ segir í skýrslunni. „Enginn farmur fannst og ekkert var fjarlægt úr flakinu.“ Í þessu sambandi má benda á að þegar rannsóknarskipinu Seabed Worker var siglt af vettvangi 10. júlí virtist AMS vilja halda þeim möguleika opnum að snúa aftur. „Framkvæmdaraðili segir að gildistími starfsleyfisins hafi verið framlengdur til 1. október 2018 og gæti því komið til þess að hann óski eftir að snúa aftur á svæðið,“ sagði í svari frá lögmanni Umhverfisstofnunar til Fréttablaðsins þennan dag. Engin tilkynning um slíkt hefur þó verið sett fram, ekki enn að minnta kosti. Halla Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, segir stofnunina enga ástæðu hafa til að efast um þá frásögn AMS að ekkert hafi verið tekið úr Minden. „Þar sem við vorum ekki á staðnum hafði ég sambandi við Landhelgisgæsluna sem var á vettvangi og fékk staðfestingu á því að þetta myndi samræmast þeirra skráningum,“ segir Halla. „Við tökum þessu alveg trúanlega þar sem við höfum engar forsendur til að rengja það neitt.“ Aðspurð hvort það sé ekki óvænt að ekkert hafi fundist í Minden kveðst Halla engar væntingar hafa haft um það. Áhugi Umhverfisstofnun hafi beinst að því hvort mengun fylgdi aðgerðunum. „Ég hef bara lagt áherslu á að þeir myndu fylgja sínum skyldum samkvæmt starfsleyfinu,“ segir hún. Og samkvæmt AMS stafaði engin mengun af framkvæmdinni. Varðandi skápinn fyrrnefnda segir Halla leiðangursmenn væntanlega hafa komið að honum tómum. „Það getur verið að þeir hafi opnað skápinn og séð að það var ekkert til að taka úr honum,“ segir hún. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að varðskipið Þór hafi verið á framkvæmdasvæðinu til að byrja með í sumar og fylgst með Seabed Worker, sem AMS var með á leigu. TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, hafi sinnt eftirliti úr lofti. „Landhelgisgæslan getur ekki fullyrt að Seabed Worker hafi ekki fundið nein verðmæti við vinnu sína við flak þýska skipsins SS Minden. Aftur á móti höfum við enga ástæðu til að efast um svör Advanced Marine Services þess efnis enda hafði fyrirtækið leyfi til þess að ná verðmætum úr flakinu,“ segir Ásgeir. Þá segir Ásgeir að Landhelgisgæslan hafi verið að gæta þess að tímarammi starfsleyfisins frá Umhverfisstofnun yrði virtur og að ekki yrði umhverfistjón vegna framkvæmdanna. „Löggæslumenn frá varðskipinu Þór fóru einu sinni um borð í Seabed Worker og fengu upplýsingar um framvindu aðgerðanna,“ segir Ásgeir. „Samkvæmt starfsleyfinu var Seabed Worker bundið af því að veita Landhelgisgæslunni upplýsingar um staðsetningu og framvindu tvisvar á sólarhring. Áhöfnin veitti allar upplýsingar sem óskað var eftir,“ bætir Ásgeir enn fremur við.Tímalína aðgerða við SS Minden19 nóvember 2017 Kýpverska rannsóknarskipið MV Forland Inspector kemur á staðinn 19.30. Kafbátur kemur niður að flakinu 22.00 og gerð er sjónskoðun á þeim hluta skipsskrokkins sem ætlunin er að rjúfa. Tæki til þess voru samhliða látin síga niður að Minden.20. nóvember Haldið áfram á miðnætti að kanna aðstæður.21. nóvember Aðgerðum hætt 8.34 vegna slæmrar veðurspár. Staðfest að engin verðmæti hefðu fundist. MV Forland Inspector yfirgaf svæðið.22. júní 2018 MV Seabed Worker kemur sér fyrir á staðnum 10.00. Veðuraðstæður hindra aðgerðir.23. til 26. júní 2018 Veðuraðstæður hindra aðgerðir fram til klukkan 08.00. Kafbáturinn settur út til að gera skoðun.27. júní til 4. júlí Vinna við flakið heldur áfram, hreinsað til og skoðun með kafbátnum. Siglt af stað til Vestmannaeyja klukkan 21.00 þann 4. júlí [einn skipverja þurfti að komast í land].6. til 11 júlí Skipið kemur aftur á staðinn klukkan 08.30. Kafbátaskoðun heldur áfram klukkan 11.00 Hreinsunarstarf hefts aftur klukkan 21.00 þann 6. júlí. Vinna heldur áfram til 19.30 þann 10. júlí þegar lokaskoðun fer fram. Það var staðfest að engir verðmætir hlutir fundust. Skipið siglir á braut um klukkan 22.00 þann 10. júlí.Heimild:Skýrsla Advanced Marine Services til Umhverfisstofnunar.Aths.Við þetta er að bæta að Landhelgisgæslan hafði stuggað rannsóknarskipinu Seabed Constructor frá flaksstaðnum í apríl. Þá höfðu útsendarar AMS þegar rofið gat á Minden.
Birtist í Fréttablaðinu Landhelgisgæslan Tengdar fréttir Vilja gögn um fjársjóðsleit Breska fyrirtækið Advanced Marine Services sem fékk leyfi Umhverfisstofnunar til að opna flak þýska skipsins Minden á sjávarbotni í því skyni að hirða úr því verðmæti hefur ekki hirt um að gefa stofnunni skýrslu um framvindu verksins. 5. október 2018 06:15 Gefin vika til að svara um Minden Umhverfisstofnun gaf í gær lögmanni breska fyrirtækisins Advanced Marine Services Ltd. vikufrest til að skila skýrslu um framvindu mála við flak þýska flutningaskipsins SS Minden. 16. október 2018 07:00 Fjársjóðsleit lokið að sinni Umhverfisstofnun fékk í gær tilkynningu frá fjársjóðsleiðangrinum yfir flaki SS Minden um að hann væri að undirbúa sig til þess að yfirgefa framkvæmdasvæðið. 11. júlí 2018 06:00 Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Innlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Fleiri fréttir Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Sjá meira
Vilja gögn um fjársjóðsleit Breska fyrirtækið Advanced Marine Services sem fékk leyfi Umhverfisstofnunar til að opna flak þýska skipsins Minden á sjávarbotni í því skyni að hirða úr því verðmæti hefur ekki hirt um að gefa stofnunni skýrslu um framvindu verksins. 5. október 2018 06:15
Gefin vika til að svara um Minden Umhverfisstofnun gaf í gær lögmanni breska fyrirtækisins Advanced Marine Services Ltd. vikufrest til að skila skýrslu um framvindu mála við flak þýska flutningaskipsins SS Minden. 16. október 2018 07:00
Fjársjóðsleit lokið að sinni Umhverfisstofnun fékk í gær tilkynningu frá fjársjóðsleiðangrinum yfir flaki SS Minden um að hann væri að undirbúa sig til þess að yfirgefa framkvæmdasvæðið. 11. júlí 2018 06:00