Fótbolti

Íslensku búningarnir slá í gegn hjá stórum miðli

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rúrik Gíslason tekur sig einkar vel út í treyjunni.
Rúrik Gíslason tekur sig einkar vel út í treyjunni. vísir/andri
Hið þekkta tímarit, Four Four Two, er með úttekt á búningum liðanna á HM og hreinlega slefar yfir báðum íslensku búningunum.

Fyrir EM þá var búningur íslenska liðsins sagður vera sá næstljótasti hjá miðlinum. Þeir elska aftur á móti nýja búninginn og þá sérstaklega ermarnar.

„Hönnunin á ermunum er kynlíf á fótleggjum, eða ermum. Eldur og ís að bræða hvort annað,“ stendur í úttekt blaðsins.

Hvíti varabúningurinn er settur í fjórða sætið hjá tímaritinu en blái aðalbúningurinn er í þriðja sæti. Ekki slæmt.

Aðalbúningur Kólumbíu tekur annað sætið og aðalbúningur Þýskalands toppsætið.

Hér má sjá úttektina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×