Vegurinn að Gullfossi og Geysi sagður stórhættulegur Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 23. febrúar 2018 19:37
Oddviti Bláskógabyggðar vill láta loka veginum upp að Gullfossi og Geysi því hann sé stórhættulegur og þoli alls ekki þá umferð sem er á honum. Svæðisstjóri Vegagerðarinnar segir starfsmenn sína ekki hafa undan að fylla upp í holur í veginum og tekur undir að ástand vegarins sé mjög slæmt. Stórar holur eru í veginum við Hjarðarland og Heiði í Biskupstungum sem liggur að Geysi og Gullfossi en hann er einn fjölfarnasti ferðamannavegur landsins. Leiðin að þessum stöðum í gegnum Laugarvatn og fram hjá Úthlíð eru snöggtum skárri. Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar, er hundfúll yfir ástandinu. Hann segist ekki sjá annað en að það þurfi að loka fyrir alla umferð á veginum við Heiði og Hjarðarland upp á Gullfoss og Geysi á meðan vegurinn verður lagaður í eitt skipti fyrir öll. „Það verður að gera stórátak á þessu ári ef það á ekki illa að fara. Þetta eru bara stórhættulegir vegir og það verður að gera eitthvað,“ segir oddvitinn. Aðrir vegir um svæðið séu hins vegar ekki í stakk búnir að taka við umferðinni ef þessum vegi verður lokað tímabundið. Svanur Bjarnason, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar, segir ástand slitlaga víða slæmt á svæðinu. Hann vonast til að hægt verði að fræsa upp og styrkja sjö og hálfan kílómetra af veginum í sumar. „Núna í vetur verðum við bara að reyna að halda í horfinu og kasta í þessar holur eins og hægt er,“ segir hann en er ekki tilbúinn að taka undir orð oddvitans um að loka þurfi veginum.
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira