Einstakt samband fjögurra ára stúlku og Gaums Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 21. janúar 2018 20:36 Gaumur tekur mikið tillit til Svölu. Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson
Einstakt samband hefur myndast á milli fjögurra ára stelpu á Selfossi og Gaums, sem er einn hæsti dæmdi stóðhestur landsins. Stelpan kembir honum, hreinsar úr hófunum og fer á bak á stóðhestinum. Kötturinn á bænum fer líka með stelpunni á hestbak. Á bænum Grænhóli í Ölfusi er rekið myndarlegt hrossaræktarbú en þar búa afi og amma Svölu Bjarkar. Svala býr hins vegar með mömmu sinni og pabba á Selfossi þar sem hún er í leikskóla. Svala Björk sem er ný orðin fjögurra ára er prinsessan á bænum því þar hefur hún alist upp í kringum hestana. Stóðhesturinn Gaumur er hennar besti vinur. Þegar það er búið að ná í Gaum inn í stíu sér Svala Björk um að kemba honum og hún hreinsar líka alltaf úr hófunum. Eftir það teymir hún stóðhestinn inn í reiðhöll. „Hann er með heiðursverðlaun þessi hestur og er frábær gæðingur með níu núll fimm fyrir hæfileika þannig að hún valdi bara það besta í húsinu. Hún fær að gera þetta á sínum hraða, ef hún vill fara á bak þá fær hún að fara á bak þegar það er tími. Auðvitað er mikilvægt að börn umgangist dýr og að þau læri að umgangast dýr. Þau þroskast mikið á því og fá ábyrgðartilfinningu,“ segir Þórdís Erla, móðir Svölu. Þórdís Erla segir Gaum nánast mennskan því hann er svo góður við Svölu og tekur mikið tillit til hennar. „Hún er dugleg og hefur áhuga og það kviknar þar, “ segir Þórdís þegar hún er spurð hvort Svala Björk sé efnileg í hestamennskunni. Þegar reiðtúrnum er lokið og Gaumur kominn aftur inn í stíuna sína fær Svala að gefa honum fóðurbætir með þökk fyrir reiðtúrinn og samvinnuna í dag.
Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Fleiri fréttir Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Sjá meira