Þrjár 29 ára vinkonur á Selfossi allar doktorar Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 4. janúar 2018 10:20 Stefanía ásamt foreldrum sínum, þeim Önnu Vilhjálmsdóttir og Garðari Eiríkssyni, á Selfossi. Vísir/MHH
Stefanía Ósk Garðarsdóttir, 29 ára Selfyssingur, varði nýlega doktorsritgerð sína við orku og umhverfisverkfræðideild tækniháskólans Chalmers í Gautaborg í Svíþjóð. Ritgerðin ber heitið „Technical and economic conditions for efficient implementation of CO2 capture – process design and operational strategies for power generation and process industries“. Stefanía er Selfyssingur í húð og hár, fædd og uppalin í plássinu. Eftir grunn- og framhaldsskólanám tók Stefanía sér ársleyfi frá námi en hóf haustið 2007 nám við Háskóla Íslands í vélaverkfræði og lauk bakkalárgráðu (BSc.) í þeim fræðum vorið 2010. Þá um haustið lá svo leiðin til Gautaborgar í Svíþjóð í meistaranám í orkuverkfræði sem hún lauk vorið 2012 og hóf þá í kjölfarið doktorsnám við sama skóla í þessum fræðum. Rannsóknir Stefaníu snerust að ákveðnu efnaferli sem nota má við kolefnabindingu frá stóriðju, þ.e. til þess að hreinsa koltvísýring úr afgösum stóriðjuferla og hindra losun hans í andrúmsloftið, t.d. við stál- og sementsframleiðslu, raforkuframleiðslu byggða á jarðefnaeldsneyti og olíuhreinsun. Stefanía skoðaði m.a. ýmsa þætti sem hafa áhrif á skilvirkni og kostnað kolefnabindingarferlisins þegar það er notað í hinum ýmsu stóriðjuferlum.Mikilvægur málaflokkurStefanía segir málaflokkinn sem hún skrifaði doktorsritgerðina sína um henni mjög mikilvægan. „Já, minnkun umhverfisáhrifa frá stóriðju er mjög mikilvæg, bæði frá íslensku og alþjóð- legu sjónarhorni. Notkun jarðefnaeldsneyta í bæði raforkuframleiðslu og í annarri mikilvægri stóriðju eins og stál- og sementsframleiðslu er gríðarlega mikil, og sé litið til heimsins er því miður erfitt að sjá það að endurnýjanlegir orkugjafar geti komið í stað alls þessa jarðefnaeldsneytis.“ Stefanía er að flytja til Noregs með eiginmanni sínum þar sem hún hefur fengið vinnu hjá norsku rannsóknarstofnuninni Sintef í Þrándheimi. Þar mun hún vinna með nokkuð svipaða hluti og í doktorsnáminu, þ.e. tæknilausnir sem snúa að minnkun umhverfisáhrifa frá stóriðju, sérstaklega frá norrænu sjónarhorni. Það er gaman að segja frá því að tvær vinkonur Stefaníu frá Selfossi, en þær voru allar saman í Fjölbrautaskóla Suðurlands á sínum tíma, luku líka doktorsprófi 29 ára gamlar. Þessar vinkonur Stefaníu eru Guðrún Nína Óskarsdóttir sem lauk doktorsprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands í byrjun sumars 2017 og Dórótea Höeg Sigurðardóttir sem lauk doktorsprófi í byggingaverkfræði frá Princeton-háskólanum í Bandaríkjunum vorið 2016.
Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira