Tveir nemendur létust í skotárás í skóla í Nýju Mexíkó í dag Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 7. desember 2017 19:14 Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu létust tveir nemendur Aztec High School í árásinni í dag Vísir/Getty
Þrír létust í skotárás í skóla í smábæ í Nýju Mexíkó í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu létust tveir nemendur Aztec High School í árásinni en 900 nemendur stunda nám við skólann. Árásarmaðurinn lést einnig á staðnum en lögregla hefur ekki gefið upp hvort árásarmaðurinn hafi verið nemandi eða tengst skólanum á einhvern hátt. Skólasvæðið var lokað af og nemendur fluttir annað en öðrum skólum á svæðinu var einnig lokað. Áhyggjufullir foreldrar söfnuðust saman fyrir utan ráðhúsið á meðan beðið var eftir frekari upplýsingum frá lögregluyfirvöldum, samkvæmt frétt BBC. „Fjölskyldur fórnarlambanna voru látin vita samstundis,“ kom fram í tilkynningu lögreglu til fjölmiðla. Lögregla rannsakar nú árásina en hefur ekki gefið upp frekari upplýsingar um aðdraganda hennar eða árásarmanninn. Ekki er talið að fleiri hafi særst í árásinni. Um 6.500 manns búa í bænum Aztec.Skjáskot
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Innlent „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Innlent Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Innlent „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu Innlent Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Innlent Fleiri fréttir Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Sjá meira