Starfs- og heimilismenn vinna að sláturgerðinni saman Ingvar Þór Björnsson og Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifa 15. október 2017 22:14
Það þykir góður siður að taka slátur á heimilum landsmanna á haustin enda hollur og ódýr matur. Á dvalarheimilinu Lundi á Hellu eru tekin 85 slátur þar sem starfsmenn og heimilismenn vinna að sláturgerðinni saman. Boðið er upp á sherrý og konfekt á meðan vinnan fer fram. Það var margt um manninn í eldhúsinu á Lundi þegar starfsfólkið hrærði í slátrið og sá um að koma því í keppina. Heimilisfólkið sat fram í sal og saumaði fyrir. Á meðan gekk hjúkrunarforstjóri Lundar á milli fólksins og bauð upp á Sherrý og konfekt. Matráður Lundar sá um að hræra í keppina. „Nú er ég að hræra saman lifur, haframjöl, salt og mjólk sem ég blanda saman áður en ég set rúgmjöl í,“ segir Inger Nielsen, yfirmatreiðslumaður á Lundi. „Svo þegar ég er búin að hræra þetta vel saman þá bæti ég mörinni í. Þá er þetta bara komið. Þetta er mjög ódýr og góður matur. Fólkið hér í húsinu er mjög hrifið af þessu. Við reynum að vera með þetta einu sinni í mánuði yfir vetrartímann. Yfir sumartímann gefum við fólki frí frá slátri,“ segir hún. Hjúkrunarforstjórinn á Lundi segir sláturdaginn alltaf jafn skemmtilegan. „Þetta er samvinna. Starfsmenn mæta og svo heimilisfólkið. Núna eru krakkar úr skólanum með okkur. Það er bara gaman að því,“ segir Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir hjúkrunarforstjóri.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira