Greiddi ekki fyrir veitingar og hnuplaði skömmu síðar Stefán Ó. Jónsson skrifar 11. september 2017 06:25 Ófáir gistu fangageymslur lögreglunnar á Hverfisgötu. VÍSIR/ANTON BRINK
Lögreglan þurfti tvisvar að hafa afskipti af sömu konunni með klukkustundarmillibili í gær. Er hún sögð í skeyti lögreglunnar hafa stundað fjársvik er hún sat á veitingahúsi í miðborginni á níunda tímanum og þáði veitingar sem hún gat svo ekki greitt fyrir. Um klukkustund síðar barst lögreglu tilkynning um að kona hefði verið staðin að þjófnaði í verslun í Skeifunni. Þegar lögreglumenn komu á vettvangi reyndist um sömu konu og á veitingahúsinu að ræða. Ekki er greint frá því í dagbók lögreglunnar hvernig málum konunnar lauk. Þá barst lögreglu tilkynning um þrjá menn á stigagangi við Bríetartún sem húsráðendur könnuðust ekki við. Þeir eru sagðir hafa verið með ýmis verkfæri meðferðis og telur lögreglan að þeir hafi haft þýfi í fórum sínum. Þeir voru vistaðir í fangageymslu meðan nánar er grennslast fyrir um mál þeirra. Einnig voru hendur hafðar í hári manns sem sagður er hafa verið í annarlegu ástandi við hús á Seltjarnarnesi. Er hann að sögn lögreglu grunaður um hótanir og að hafa ekki farið eftir fyrirmælum lögreglunnar. Hann var fluttur í fangaklefa þar sem hann hefur varið nóttinni.
Lögreglumál Mest lesið Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Alvöru inniveður um helgina Innlent Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Innlent Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Listamönnum fækkar ört Innlent Hvalfjarðargöng lokuð Innlent Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Innlent Enn frekari dráttur á máli Margrétar Innlent Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Innlent Truflanir víða vegna eldingaveðurs Innlent Fleiri fréttir Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Truflanir víða vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Enn frekari dráttur á máli Margrétar „Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Rafmagnslaust vegna eldingar Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna tilnefnd til blaðamannaverðlauna Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar Bjarki lætur staðar numið í Dalabyggð Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Kynna þjóðaratkvæði um framhald viðræðna Bein útsending: Kynna tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Kynna tillöguna um þjóðaratkvæðagreiðsluna klukkan 11:30 „Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Bein útsending: Staða mæðra á vinnumarkaði Sjá meira