Skattahækkun á baðlón sögð svik við fyrirheit ríkisstjórnarinnar Birgir Olgeirsson skrifar 27. mars 2026 15:52 Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, gefur plani ríkisstjórnarinnar um hækkun virðisaukaskatts á baðlón algjöra falleinkunn. Allt traust milli atvinnugreinarinnar og ríkisstjórnarinnar sé brostið ef af þessum fyrirtætlunum verður. Anton Brink Ferðaþjónustan varð fyrir miklu áfalli þegar fram kom í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að til stæði að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent, að sögn Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Hann segir samtökin líta málið alvarlegum augum og að með þessu sé farið gegn skýrum yfirlýsingum stjórnvalda um að ekki stæði til að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. „
Þetta kemur ferðaþjónustunni algjörlega í opna skjöldu. Það hefur ítrekað komið fram, ekki síst af hálfu stjórnarflokkanna, að ekki stæði til að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. Þess vegna lítum við þetta mjög alvarlegum augum,“ segir Jóhannes í samtali við Vísi. Samtök ferðaþjónustunnar töldu sig hafa átt í góðu samtali við ríkisstjórnina um framtíð ferðaþjónustunnar. Sér í lagi hafi samtalið um atvinnustefnu stjórnvalda lofað góðu. Nú er annað hljóð komið í skrokkinn eftir að ríkisstjórn kynnti fjármálaáætlun sína þar sem hækkun virðisaukaskatts á baðlón er boðið.Vilhelm Hann segir SAF ekki vera mótfallin gjaldtöku sem slíkri. Samtökin hafi þvert á móti átt í samtali við stjórnvöld um svokallað náttúru- og innviðagjald og heildstæða nálgun á gjaldtöku í ferðaþjónustu. Vandinn sé sá að nú sé virðisaukaskattshækkun sett fram samhliða þeirri umræðu, þrátt fyrir að öðru hafi verið lofað. Hækkunin er rauð lína Að sögn Jóhannesar er um grundvallarmál að ræða fyrir greinina. „Við erum alveg skýr á því að virðisaukaskattshækkun á ferðaþjónustu er rauð lína. Ef ríkisstjórnin ætlar að ganga á bak eigin orða í þessu efni þá hefur það áhrif langt út fyrir þetta einstaka mál. Þá er verið að rjúfa það traust sem þarf að vera til staðar í samskiptum atvinnugreinarinnar og stjórnvalda.“ Baðlón njóta gríðarlega vinsælda hér á landi og er Sky Lagoon á Kársnesi eitt þeirra.Vilhelm Hann segir gott og uppbyggilegt samtal hafa átt sér stað við stjórnvöld undanfarna mánuði, meðal annars við atvinnuvegaráðuneytið og í vinnu sem tengist atvinnustefnu stjórnvalda. Því séu viðbrögðin enn sterkari nú. „Við töldum að samtalið væri á réttri leið. Þess vegna erum við verulega slegin yfir þessu.“ Ráðuneytið horfir fram hjá áhrifum á hegðun Jóhannes gagnrýnir jafnframt forsendur breytingarinnar og segir fjármálaráðuneytið horfa of þröngt á málið. „Þarna er í raun bara verið að setja 24 prósent inn í excel-skjal og reikna út auknar tekjur, án þess að taka fullt tillit til áhrifa á hegðun, verðlagningu fyrirtækja, eftirspurn eða samkeppnisstöðu greinarinnar. Fjármálaráðuneytið hefur sjálfst staðfest að sú aðferðafræði sem notuð er sé ekki raunverulegt áhrifamat. Reynslan og rannsóknir sýna hins vegar að þegar virðisaukaskattur er hækkaður á ferðaþjónustu þá skilar það mun minni tekjum í ríkissjóð en reiknað er með en veldur um leið skaða í hagkerfinu.“ Frá Bláa lóninu sem er eitt þekktasta vörumerki Íslands utan landsteinanna. Ef af verður mun virðisaukaskattur á lónið hækka úr 11% í 24%.Vilhelm Hann vísar þar meðal annars til fyrri greininga með þjóðhagslíkönum sem sýni að slík skattahækkun dragi úr eftirspurn og hafi neikvæð áhrif á atvinnugreinina og efnahagsstærðir án þess að skila þeim tekjum sem vænst er. Ferðaþjónustan ekki drifkraftur verðbólgu Þá hafnar Jóhannes því að aðgerðin verði réttlætt með vísan til verðbólgu eða ofþenslu af völdum ferðaþjónustunnar. „Ef horft er til síðustu ára þá hefur ferðaþjónustan ekki vaxið. Það komu álíka margir ferðamenn til landsins í fyrra og árið 2017. Að halda því fram að verðbólguþróun síðustu ára sé vexti ferðaþjónustunnar að kenna er einfaldlega rangt.“ Ferðaþjónustan hefur ekki vaxið frá árinu 2017 og því erfitt að kenna henni um þróun verðbólgunnar að mati Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Vísir/Vilhelm Hann segir greiningar með þjóðhagslíkani Ferðamálastofu jafnframt benda til þess að jafnvel nokkur samdráttur í ferðaþjónustu hefði hverfandi áhrif á verðbólgu. „Greiningin sýnir svart á hvítu að 5% samdráttur í ferðaþjónustu myndi nánast engu skila í baráttunni við verðbólgu. Til þess þyrfti ríkið að framkalla miklu harkalegri samdrátt, um tugi prósenta, og það væri einfaldlega heimskuleg efnahagsaðgerð.“ Sérstaða Íslands undir Jóhannes bendir einnig á að baðlón og baðmenning séu meðal helstu sérkenna íslenskrar ferðaþjónustu og mikilvægur þáttur í alþjóðlegri markaðssetningu landsins. „Baðlónin eru vinsælasta afþreying ferðamanna á Íslandi og ein helsta sérstaða Íslands í ferðaþjónustu í alþjóðlegu samhengi. Þau skipta miklu máli í því að laða hingað verðmætari ferðamenn, sem stjórnvöld leggja mikla áherslu á. Þetta snýst því ekki bara um einstaka þjónustu, heldur um íslenska ferðaþjónustu og samkeppnisstöðu landsins í heild.“ Vök, baðlónið við UrriðavatnJói K Hann segir áhrifin auk þess ekki eingöngu leggjast á erlenda ferðamenn. Baðlón bjóði heimafólki árskort og aðgengi, ekki síst í ærsamfélögum á landsbyggðinni, sem myndi hækka verulega ef skattbreytingin næði fram að ganga. „Við sjáum það til dæmis hjá böðum utan höfuðborgarsvæðisins að heimafólk nýtir sér þau mikið. Þessi breyting myndi hækka árskort um rúmlega tuttugu þúsund krónur. Þetta snertir því ekki bara erlenda ferðamenn heldur líka Íslendinga.“ Evrópuríki líti á þetta sem samkeppnismál Jóhannes segir það vel þekkta staðreynd í Evrópu að lægra virðisaukaskattsþrep á ferðaþjónustu sé fyrst og fremst samkeppnismál. „Meðalvirðisaukaskattur á ferðaþjónustu í Evrópu er í kringum 12 prósent. Ástæðan er sú að ríki átta sig á því að ef þau verðleggja sig út af markaðnum þá tapast eftirspurn, tekjur og verðmætasköpun. Það er vel þekkt reynsla margra Evrópuríkja að þegar virðisaukaskattur á ferðaþjónustu er hækkaður minnkar eftirspurn, en þegar hann er lækkaður eykst hún.“ Jóhannes Þór Skúlason segir boðaða virðisaukaskattshækkun grafa undan trausti milli ferðaþjónustunnar og ríkisstjórnarinnar. Vísir/Ívar Fannar Að hans mati snýst málið því ekki um andstöðu við gjaldtöku heldur um hvaða leiðir skili raunverulega árangri. „Við erum ekki að segja að ferðaþjónustan eigi ekki að greiða gjöld eða skatta. Við erum að segja að þessi leið sé röng, skili ekki því sem henni er ætlað og grafi um leið undan trausti milli stjórnvalda og atvinnugreinarinnar.“
Ferðaþjónusta Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sundlaugar og baðlón Skattar, tollar og gjöld Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira