Selfoss lætur ekki stela af sér markadrottningu deildarinnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2017 09:45 Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Hulda Dís Þrastardóttir. Mynd/Handknattleiksdeild Selfoss
Systurnar Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Hulda Dís Þrastardóttir hafa báðar framlengt samninga sína við handknattleiksdeild Selfoss og spila því áfram með liðinu í Olís-deild kvenna næsta vetur. Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir hefur verið markadrottning Olís-deildar kvenna undanfarin þrjú tímabil og hefur í öll skiptin verið kosin besti sóknarmaður deildarinnar. Það má búast við að mörg lið í deildinni hafi áhuga á að semja við þennan frábæra leikmann en Selfoss nær að halda henni sem eru frábærar fréttir fyrir liðið. Hrafnhildur Hanna varð markadrottning í vetur þrátt fyrir að missa af síðustu þremur leikjunum eftir að hún sleit krossband í landsleik. Hrafnhildur Hanna skoraði alls 174 mörk í 18 leikjum í Olís-deildinni eða 9,7 mörk að meðaltali í leik. Hún var fastamaður í A-landsliði Íslands fyrir meiðslin þar sem hún hefur spilað 22 landsleiki og skorað í þeim 47 mörk. Hulda Dís, yngri systir hennar, hefur verið fastamaður í liði Selfoss undanfarin og er einn allra sterkasti varnarmaður deildarinnar. „Handknattleiksdeild Selfoss fagnar því að þær systur skuli halda tryggð við sitt heimafélag og hlakkar til næsta vetrar með þær innanborðs. Frekari frétta af leikmannamálum hjá Selfoss að vænta á næstu dögum,“ segir í fréttatilkynningu frá Handknattleiksdeild Selfoss.
Olís-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sjá meira