Sex ISIS-liðar handteknir í Rússlandi Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 6. apríl 2017 06:00 Fjöldi minntist fórnarlamba lestarárásarinnar fyrr í vikunni. Ólíklegt er þó að mennirnir tengist árásinni. Nordicphotos/AFP
Sex liðsmenn, grunaðir um að reyna að lokka Rússa til liðs við Íslamska ríkið, voru handteknir í Sankti Pétursborg í gær. Þeir eru einnig grunaðir um að hafa hjálpað hryðjuverkamönnum. Rússneskir miðlar greindu frá þessu í gær. Lesefni fyrir hryðjuverkamenn fannst í húsnæði sexmenninganna. Hinir grunuðu eru frá Mið-Asíulöndum og hafa verið virkir frá því í nóvember. ISIS hefur áður fengið til liðs við sig ýmsa öfgamenn frá Mið-Asíuríkjum. Ekki er talið að þeir tengist Kirgisanum Akbarzhon Jalilov sem grunaður er um að hafa borið ábyrgð á árásinni á neðanjarðarlest í borginni í upphafi vikunnar. Líkamsleifar Jalilovs fundust í lestinni og því mun árásin teljast sjálfsmorðsárás ef grunur rannsakenda reynist réttur. Fjórtán fórust í árásinni og fimmtíu særðust. Enn sem komið er hafa engin hryðjuverkasamtök lýst yfir ábyrgð á árásinni. Að sögn BBC grunar rannsakendur þó að þar hafi Íslamska ríkið verið að verki. Jalilov hafi viljað hefna fyrir loftárásir Rússa á herbúðir Íslamska ríkisins í Sýrlandi og því ráðist á lestina.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Innlent Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Innlent Telur áform ráðherra vanhugsuð Innlent Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ Innlent Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Erlent Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Innlent Bein útsending: Minningarathöfn Charlie Kirk Erlent Einhverjar breytingar þurfi að eiga sér stað innan Framsóknar Innlent Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Innlent Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Minningarathöfn Charlie Kirk Kanada, Bretland og Ástralía viðurkenna Palestínu Trump og Vance ávarpa minningarathöfn Charlie Kirk Búast við því að Bretar viðurkenni sjálfstæði Palestínu í dag Þrjátíu handteknir í óeirðum í Hollandi Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Austurríki hvetur ríki til að draga sig ekki úr Eurovison Grænlendingar ná ekki að klára hvalveiðikvóta Sænskur sjúkraflutningamaður myrtur í útkalli Trump og Selenskí funda á ný Miklar tafir á fjölda flugvalla vegna netárásar Cruz sagði hótanir Carr líkt og frá mafíósa í Goodfellas Eistar óska eftir samráði NATO eftir að Rússar rufu lofthelgi þeirra Gary Busey dæmdur fyrir kynferðisbrot Íslendingur grunaður um morð í Svíþjóð Rússneskum herþotum flogið inn í lofthelgi Eistlands Sagður neita að samþykkja hergagnasendingu til Taívan Norska krónprinsessan í veikindaleyfi Reiðir Könum sem skreyta sig með fána Kanada Rússar áfrýja niðurstöðu um hrap malasísku farþegaþotunnar Lofuðu Trump í Norður-Kóreustíl Banna kennslubækur eftir konur í háskólum landsins Bandaríkin beittu neitunarvaldinu gegn kröfu um vopnahlé Segir Pútín hafa valdið sér „miklum vonbrigðum“ Sviptu hulunni af skósveinum GRU sem sendu sprengjur í flugvélar Eltihrellir sat fyrir lögregluþjónum og skaut þrjá til bana Segir Fallon og Meyers næsta: „Gerið þetta NBC!!!“ Hans Enoksen er látinn Telja að manngerð hlýnun hafi valdið 16.500 viðbótardauðsföllum í sumar 80.000 lögreglumenn í viðbragðsstöðu vegna boðaðra mótmæla í dag Sjá meira