Sport

Ragnheiður Sara aðeins fjórum stigum á eftir efsta manni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Katrín Tanja til vinstri og Ragnheiður Sara til hægri.
Katrín Tanja til vinstri og Ragnheiður Sara til hægri. vísir
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er aðeins fjórum stigum á eftir efsta manni í einstaklingskeppninni í crossfit en keppt var á heimsleikunum í nótt. Sara keppni í tveimur greinum í gær og hafnaði þar í 3. og 17. Sæti en samanlagt er hún öðru sæti leikanna.

Katrín Tanja Davíðsdóttir náði að vinna eina grein í nótt og hafnaði í 14. í annarri. Hún er samanlagt í fjórða sæti keppninnar. Annie Mist er að fjarlægjast þær eftir greinarnar í nótt en hún er núna samanlagt í níunda sætinu.

Björgvin Karl er í 11. sæti í heildarkeppninni eftir nóttina en hann hafnaði í 19. sæti og 31. sæti í greinunum tveimur. Keppnin heldur áfram í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×