Ótrúlega vel heppnað aprílgabb hjá leikmönnum Golden State | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. apríl 2016 23:12
Andre Iguodala, leikmaður NBA-meistara Golden State Warriors, fór illa með liðsfélaga sinn Festus Ezeli í tilefni af 1. apríl og myndbandið fór á flug á netinu. Iguodala lét Festus Ezeli halda að Golden State Warriors væri búið að láta Ezeli fara frá liðinu en þessi öflugi miðherji hefur verið mikið meiddur á leiktíðinni og lék síðast með liðinu 25. janúar. Iguodala sá svo til þess að Festus Ezeli var að hlusta á útvarpið í bíl þegar það kom frétt um að Golden State Warriors væri búið að segja upp samningi sínum við Festus Ezeli. Í viðbót við það fékk Andre Iguodala liðsfélaga þeirra í Warriors-liðinu með sér í aprílgabbið og hinir leikmenn Golden State Warriors fóru í framhaldinu að senda Festus Ezeli smáskilaboð þar sem þeir þökkuðu fyrir samstarfið og að þeim þótti leiðinlegt að heyra þessar fréttir. Festus Ezeli vissi ekki hvað hann átti að halda og það var greinilega farið að fara um stóra manninn þegar Andre Iguodala birtist hlæjandi og kallaði: „1. apríl." Festus Ezeli hefur leikið með Golden State liðinu frá 2012 en hann var með 7,5 stig, 5,9 fráköst og 1,2 varið skot að meðaltali í leik áður en hann meiddist. Það má sjá myndbandið með hrekknum sem og viðbrögð Festus Ezeli í spilaranum hér fyrir ofan. Golden State Warriors er með langbesta árangurinn í NBA-deildinni í körfubolta en liðið vann NBA-titilinn síðasta sumar og hefur unnið 68 af 75 leikjum í titilvörn sinni.
Aprílgabb NBA Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira