Sigurður segist ekki hafa vitað af Wintris ingvar haraldsson skrifar 6. apríl 2016 11:00 Sigurður Hannesson segir Sigmund ekki hafa rætt persónuleg fjármál sín eða eiginkonu sinnar við sig áður en sagt var frá Wintris opinberlega. fréttablaðið/stefán
Sigurður Hannesson, fulltrúi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í framkvæmdahópi um afnám fjármagnshafta, segir að sér ekki hafa verið kunnugt um eðli félagsins Wintris áður en sagt var frá því í fjölmiðlum. „Mér var ekki kunnugt um það að þau ættu kröfur á föllnu bankana, hvers eðlis félagið Wintris væri eða hvar í heiminum það væri staðsett,“ segir Sigurður í skriflegu svari til Markaðarins. Sigmundur seldi helmingshlut í Wintris til Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur, eiginkonu sinnar, á gamlársdag 2009. Félagið lýsti kröfum að verðmæti hálfs milljarðs króna í þrotabú föllnu bankanna. Sigurður segir Sigmund ekki hafa rætt við sig um persónuleg fjármál sín eða Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur fyrr en fjallað hafi verið um málið á opinberum vettvangi. Sigurður var skipaður af Sigmundi sem formaður sérfræðingahóps um höfuðstólslækkun verðtryggðra húsnæðislána árið 2013. Þeir voru einnig saman við nám í Oxford á Bretlandi. Anne Krueger, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem starfaði sem hagfræðilegur ráðgjafi stjórnvalda við haftalosun, segist ekki vita neitt um Wintris og vill því ekki tjá sig frekar. Óskað var eftir viðtali við Lee Buchheit, sem starfað hefur sem ráðgjafi stjórnvalda við haftalosun og við Icesave-samningaviðræðurnar en ekki var orðið við þeirri beiðni.
Birtist í Fréttablaðinu Panama-skjölin Mest lesið „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Viðskipti erlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Sjá meira