Íslenski boltinn

Valur Reykjavíkurmeistari eftir sigur á Fylki | Myndir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bikarinn fór á loft í Egilshöll í kvöld.
Bikarinn fór á loft í Egilshöll í kvöld. Vísir/Ernir
Valur varð í kvöld Reykjavíkurmeistari í knattspyrnu eftir sigur á Fylki í úrslitaleiknum sem fór fram í Egilshöll í kvöld, 1-0.

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 59. mínútu en hún sneri aftur til Vals í haust úr atvinnumennsku.

Fylkir vann KR í undanúrslitunum, 3-1, fyrr í þessum mánuði og Valur hafði þá betur gegn HK/Víkingi, 9-0. Bæði Valur og Fylkir höfðu mikla yfirburði í sínum riðlum í mótinu.

Ernir Eyjólfsson, ljósmyndari 365, var á vellinum í kvöld og tók meðfylgjandi myndir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×