„Kannski betra fyrir smáþjóð eins og okkur að vera ekki að blanda okkur í þetta“ Aðalsteinn Kjartansson skrifar 18. janúar 2016 17:06
Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarflokks og formaður efnahags- og viðskiptanefndar, gerir athugasemdir við að Innviðafjárfestingabanki Asíu njóti skattfrelsis hér á landi og varar við áhrifum sem Kínverjar munu hafa innan bankans. Kína er stærsti hluthafinn í bankanum með um 26 prósenta hlut.Hvaða banki er þetta? Frosti var gestur í Harmageddon á X-inu í dag þar sem hann svaraði því meðal annars hvaða banka væri um að ræða. „Þetta er banki sem á að fjárfesta í innviðum í Asíu og Eyjaálfu, væntanlega brúm og vegum og kjarnorkuverum eða orkuverum og einhverju slíku sem nauðsynlegt er að koma upp þarna á þessu hraðvaxandi svæði,“ svaraði Frosti. Frosti sagði að um svokallaðan samfélagsbanka að ræða en sjálfur hefur hann vakið athygli fyrir þá afstöðu sína að vilja breyta Landsbankanum í samskonar banka. Hann sagði að markmiðið með stofnun bankans væri ekki að hámarka arðsemi eða hlut eigendanna. „Það er ekki fjárfestingatækifæri að leggja til hlutafé til bankans, alls ekki. Þá spyr maður hvers vegna erum við að gera þetta með almannafé á Íslandi? Hvers vegna erum við að gera þetta með gjaldeyri sem væri hægt að nota til annarra verkefna og leggja þarna inn? Ástæðurnar sem eru gefnar í þessum gögnum sem fylgir þessu er að þetta veki sýnileika Íslands í Asíu, að þetta sé eitthvað sem hjálpi íslenskum fyrirtækjum að eiga viðskipti í Asíu og koll af kolli,“ sagði hann. Frosti efast um og sagði það mjög vafasamt að ætla að þátttaka í stofnun bankans feli í sér viðskiptatækifæri fyrir íslensk fyrirtæki.Kínverjar með stóran hlut Frosti gerði einnig stóran eignarhlut Kínverja í bankanum að umtalsefni. „Það er annar banki til sem heitir Alþjóða fjárfestingabankinn, þar sem Bandaríkjamenn eiga 13 prósent og þeirra hlutur talinn ískyggilega hár þar og áhrif þeirra mikil en í þessum banka sem er verið að stofna þarna eru Kínverjar með 26 prósent, og starfa á öðru svæði. Hann mun ekkert starfa á okkar heimssvæði,“ sagði hann. „Þetta virðist vera einhver svona hjarðhegðun, ef öll Norðurlöndin gera þetta, ef einhver Evrópuríki gera þetta þá eigum við að gera þetta líka. En við verðum bara að hugsa sjálfstætt,“ sagði Frosti og bætti við: „Ég held að við eigum ekki að hegða okkur eins og sauðir í þessu. Við eigum líka að velta því fyrir okkur af hverju Bandaríkjamenn vilja ekki vera með, af hverju vilja Kanadamenn ekki vera með, af hverju eru 150 ríki sem ekki vera með?“ Um fimmtíu ríki ætla að taka þátt í stofnun bankans en þar á meðal eru öll ríki Vestur-Evrópu og Norðurlöndin.Gagnrýnir heimildir sem bankinn villFrosti gerði einnig athugasemdir við þær heimildir sem bankinn vill fá til umsvifa hér á landi. „Svona bankar vilja fá skattfrelsi fyrir alla starfsmenn, þeir vilja að stofnunin sjálf sé skattfrjáls hér á landi, ef kæmi til einhverra tekna hérna á Íslandi, hann fái bankareikning í Seðlabankanum og hann megi færa peninga inn og út af þessum reikningi án þess að gefa nokkrar upplýsingar um hvaða fé þetta er, Fjármálaeftirlitið megi ekki kalla eftir gögnum,“ sagði hann. Frosti segist efins um að smáþjóð eins og Ísland eigi að taka þátt í stofnun banka á borð við innviðafjárfestingabankann. „Við höfum engin áhrif á stjórn bankans eða stefnuna sem hann tekur. Þetta getur verið stórpólitískt fyrirbæri í framtíðinni. Við vitum alveg að Kínverjar eru kannski ekki alveg á sömu blaðsíðunni varðandi sjálfstæði vissra ríkja í nágrenni þeirra og annað slíkt. Við vitum ekki hvaða stefnu bankinn tekur varðandi umhverfismál. Í hverju ætlar hann að fjárfesta? Margt af þessu geta verið vandasöm mál og kannski betra fyrir smáþjóð eins og okkur að vera ekki að blanda okkur í þetta.“ Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, var viðstaddur stofnfund bankans um helgina en Frosti sagði að honum þyki það bráðlæti að fara og skrifa undir stofnun bankans áður en að þingið sé búið að afgreiða málið endanlega á þinginu. „Það má ekki binda hendur þingsins,“ sagði hann.
Alþingi Mest lesið Klístruð gólf og mygla meðal þess sem felldi Alvotech Viðskipti innlent Bindur vonir við „plan B“ Viðskipti innlent Kári og Hannes stofna fyrirtæki: „Erum aðallega bara að velta fyrir okkur heiminum“ Viðskipti erlent Markaðurinn telur taumhaldið of þétt en býst ekki við lækkun Viðskipti innlent Spá að stýrivextir haldist óbreyttir Viðskipti innlent Milljón króna sekt fyrir að reka gistiheimili án leyfis Viðskipti innlent Ótrúlegt að bankarnir hafi komist upp með að „loka sjoppunni“ Neytendur Stöðva rekstur Vélfags Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent PlayStation 5 slær Xbox 360 við Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bindur vonir við „plan B“ Klístruð gólf og mygla meðal þess sem felldi Alvotech Spá að stýrivextir haldist óbreyttir Markaðurinn telur taumhaldið of þétt en býst ekki við lækkun Stöðva rekstur Vélfags Milljón króna sekt fyrir að reka gistiheimili án leyfis Ráðinn aðstoðarsköpunarstjóri Hvíta hússins Ráðin framkvæmdastýra Ljósleiðarans Lögleiða þurfi netspilun til að ná stjórn á ástandinu Aldrei mikilvægara að fylgjast vel með lánunum Fundu „þjóðaröryggis-málma“ á Grænlandi Vélfag hafi ítrekað grafið undan eigin undanþágu Hallgrímur Örn og Bára Hlín til atNorth Vélfagi synjað um frekari undanþágur frá þvingunaraðgerðum Arion banki tilkynnir nýtt lánaframboð Bird skellt í lás Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Fóru með sigur af hólmi í Bretlandi Blása í lúðra vegna atvinnuleysis á Suðurnesjum Nýtt lánafyrirkomulag varanleg lausn til að losa um stífluna Vonar að stíflan á markaðnum muni brátt bresta Íslandsbanki opnar á verðtryggð húsnæðislán á föstum vöxtum Segist ekki svindlari heldur vilja skrá sig í sögubækurnar Illskiljanleg viðmið vinni gegn markmiði Seðlabankans Happy Hydrate seldi fyrir 302 milljónir Hulunni svipt af vaxtaviðmiðinu Grafalvarleg staða Sambíóin í Mjóddinni víkja fyrir Nova Bein útsending: Umræður á seinni degi Sjávarútvegsráðstefnunnar Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana Sjá meira
Kári og Hannes stofna fyrirtæki: „Erum aðallega bara að velta fyrir okkur heiminum“ Viðskipti erlent
Kári og Hannes stofna fyrirtæki: „Erum aðallega bara að velta fyrir okkur heiminum“ Viðskipti erlent