96 stiga sveifla hjá Inga Þór á einum sólarhring Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. nóvember 2015 12:30 Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari meistaraflokka Snæfells. Vísir/Anton
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari meistaraflokka Snæfells í Domino´s deildum karla og kvenna og liðin fengu að upplifa ólíka hluti á einum sólarhring. Karlalið Snæfells tapaði með 39 stiga mun á móti KR í gærkvöldi, 103-64, þar sem KR-liðið vann alla fjóra leikhlutana í leiknum. Kvöldið áður hafði kvennalið Snæfells aftur á móti unnið 57 stiga sigur á Hamar í Hólminum, 89-32, í leik þar sem Snæfellsliðið vann alla fjóra leikhlutana. Ingi Þór upplifði með þessu 96 stiga sveiflu á aðeins einum sólarhring auk þess að steinliggja á móti sínum gömlu lærisveinum í KR. Kvennaliðið er aftur á móti í mjög góðum málum hjá Inga Þór eins og undanfarin tímabil en hann hefur gert Snæfellskonur að Íslandsmeisturum tvö ár í röð. Snæfellskonur hafa verið á miklu skriði og unnið síðustu fjóra leiki sína með samtals 152 stigum eða 38 stigum að meðaltali. Snæfellsliðið er núna í 2. sæti deildarinnar og eina liðið sem heldur í við topplið Hauka. Snæfellsstelpurnar unnu ekki bara alla fjóra leikhlutana á móti Hamri heldur er liðið búið að vinna tíu leikhluta í röð í deildinni eða alla leikhluta síðan í 2. Leikhluta á móti Grindavík 4. nóvember. Snæfellskarlarnir voru aftur á móti tapa öðrum leiknum sínum í röð í deildinni og fjórða leiknum af fyrstu sex á tímabilinu.
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Mest lesið Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Handbolti Viðtökurnar á Anfield munu ekki breyta neinu Fótbolti Kærastan tók eftir því að eitthvað var að Handbolti „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ Enski boltinn Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug Enski boltinn „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Íslenski boltinn „Haaland er þetta góður“ Enski boltinn Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Körfubolti Dagskráin í dag: Sú elsta og virtasta, enska úrvalsdeildin og Extra Sport Lygilega jafnt á toppnum eftir sigur AC Milan Fótbolti Fleiri fréttir Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum „Við þurfum að vera betri varnarlega“ Íslenski körfuboltinn og Grindavík verðlaunuð NBA-leikmaður með krabbamein Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta „Getum verið fjandi góðir“ Uppgjörið: Álftanes-Njarðvík 93-92 | Heitur Haukur var hetjan á Álftanesinu Uppgjörið: Keflavík - Þór Þ. 86-82 | Þarf ekki alltaf að vera fallegt ef það virkar „Varnarleikur snýst eiginlega bara um að nenna“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 55-90 | Taplausir Grindvíkingar kjöldrógu Val „Búnir að sýna hvað við getum verið lélegir“ KR - ÍA 109-75 | KR-ingar sýndu allar sínar bestu hliðar þegar þeir burstuðu Skagamenn Íslandsmeistararnir frá því fyrir sextíu árum heiðursgestir í kvöld Sjá meira