Fótbolti

Byrjunarlið Íslands gegn Tékklandi | Eiður á bekknum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. Vísir
Hvorki Eiður Smári Guðjohnsen né Jón Daði Böðvarsson eru í byrjunarliði Íslands sem mætir Tékklandi í undankeppni EM 2016 í kvöld.

Þess í stað mun Jóhann Berg Guðmundsson spila sem framherji við hlið Kolbeins Sigþórssonar.

Birkir Bjarnason verður á hægri kantinum og Emil Hallfreðsson þeim vinstri og þá heldur Birkir Már Sævarsson sæti sínu í byrjunarliðinu en var einnig hægri bakvörður liðsins gegn Kasakstan.

Theódór Elmar Bjarnason er á bekknum að þessu sinni, rétt eins og Eiður Smári og Jón Daði.

Leikurinn hefst klukkan 18.45 og verður fylgst með honum í beinni textalýsingu á Boltavaktinni.

Markvörður:

Hannes Þór Halldórsson

Vörn:

Birkir Már Sævarsson

Kári Árnason

Ragnar Sigurðsson

Ari Freyr Skúlason

Miðja:

Birkir Bjarnason

Aron Einar Gunnarsson

Gylfi Þór Sigurðsson

Emil Hallfreðsson

Framherjar:

Jóhann Berg Guðmundsson

Kolbeinn Sigþórsson


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×